Galíleó Galílei
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Galileo Galilei (15. febrúar 1564 – 8. janúar 1642) var ítalskur stærðfræðingur, stjörnufræðingur og eðlisfræðingur. Hann var upphafsmaður þess að samhæfa kenningu og tilraunir í eðlisfræði. Hann leiddi út lögmálið um jafna hröðun fallandi hlutar, s = (1/2)at² og sannreyndi það með tilraunum. Einnig leiddi hann út fleygbogaferil hlutar á flugi í þyngdarsviði. Hann fann upp sjónaukann og gerði fyrstur manna merkar og framúrskarandi athuganir með sjónauka á stjarnfræðilegum fyrirbærum. Seinna á ævi hans olli stuðningur hans við kenningar Kópernikusar um það að reikistjörnurnar gengju umhverfis sólina árekstri við kirkjuna og sat hann í stofufangelsi vegna þessara kenninga sinna. Hann hefur alla tíð verið gífurlega mikils metinn fræðimaður og sést það best á því að hann hefur verið nefndur „faðir nútíma stjarnfræði“, „faðir nútíma eðlisfræði“ og „faðir vísindanna“.