2. júlí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jún – Júlí – Ágú | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 31 | |||||
2006 Allir dagar |
2. júlí er 183. dagur ársins (184. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 182 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1849 - Jón Sigurðsson og fleiri alþingismenn gerðu þá kröfu að Alþingi yrði háð í heyranda hljóði.
- 1874 - Á Oddeyri í Eyjafirði og víðar á Norðurlandi var haldin þjóðhátíð í minningu þúsund ára byggðar í landinu. Slík hátíð var haldin mánuði síðar annars staðar.
- 1876 - Alls 752 Norðlendingar sem voru að flytjast til Ameríku lögðu af stað með skoska gufuskipinu Verona frá Akureyri til Glasgow. Þetta var stærsti hópurinn sem fór í einni ferð. Tíu dögum síðar fór 400 manna hópur með sama skipi frá Seyðisfirði.
- 1907 - Tveir Þjóðverjar fórust í Öskjuvatni þar sem þeir voru við rannsóknir. Minningartafla um þetta slys var sett upp 1951.
- 1948 - Þriðji landsleikur Íslendinga í knattspyrnu var gegn Finnum og unnu Íslendingar með 2:0. Þetta var fyrsti sigur íslenska landliðsins í fótbolta.
- 1974 - Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.
[breyta] Fædd
- 1489 - Thomas Cranmer, upphafsmaður ensku biskupakirkjunnar (d. 1556).
- 1714 - Christoph Willibald Gluck, þýskt tónskáld (d. 1787).
- 1877 - Hermann Hesse, þýskur rithöfundur og nóbelsverðlaunahafi (d. 1962).
[breyta] Dáin
- 1638 - Gísli Oddsson, Skálholtsbiskup (f. 1593).
- 1778 - Jean-Jacques Rousseau, franskur heimspekingur (f. 1712).
- 1961 - Ernest Miller Hemingway, bandarískur rithöfundur og nóbelsverðlaunahafi (f. 1899).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |