28. júlí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jún – Júlí – Ágú | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 31 | |||||
2006 Allir dagar |
28. júlí er 209. dagur ársins (210. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 156 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1662 - Kópavogsfundurinn, erfðahyllingin í Kópavogi. Þá létu Árni Oddsson lögmaður og Brynjólfur Sveinsson biskup undan kröfum danska valdsins um að samþykkja einveldi Danakonungs á Íslandi.
- 1895 - Vígð var brú á Þjórsá við Þjótanda að viðstöddu fjölmenni. Sú brú var notuð í rúmlega hálfa öld.
- 1957 - Vígð var kirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og nefnd Hallgrímskirkja, til minningar um sálmaskáldið og prestinn Hallgrím Pétursson, sem þjónaði þar síðustu áratugi sína í embætti.
- 1960 - Norðurlandaráð hélt þing sitt í fyrsta sinn á Íslandi. Ráðið var stofnað 1952.
- 1974 - Þjóðhátíð til minningar um 11 alda byggð á Íslandi var haldin á Þingvöllum. Þangað streymdi um fjórðungur þjóðarinnar. Alþingi hélt hátíðarfund og samþykkti ályktun um gróðurvernd og landgræðslu.
- 1985 - Íslandsmet var sett í fallhlífastökki á Akureyri er fimm fallhlífastökkvarar mynduðu stjörnu og héldu henni í 45 sekúndur.
[breyta] Fædd
- 1902 - Karl Popper, austurrísk-enskur vísinda- og stjórnmálaheimspekingur (d. 1994).
- 1979 - Birgitta Haukdal, söngkona.
- 1982 - Ágústa Eva Erlendsdóttir, betur þekkt sem Silvía Nótt.
[breyta] Dáin
- 1741 - Antonio Vivaldi, ítalskt tónskáld (f. 1678).
- 1750 - Johann Sebastian Bach, þýskt tónskáld (f. 1685).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |