10. júlí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jún – Júlí – Ágú | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 31 | |||||
2006 Allir dagar |
10. júlí er 191. dagur ársins (192. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 174 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1815 - Hið íslenska Biblíufélag var stofnað með einkarétt til útgáfu Biblíunnar á Íslandi.
- 1875 - Í Biskupstungum gerði haglél með miklum stormi, þrumum og eldingum og stóð í 3 klukkustundir.
- 1937 - Það slys varð að danskur maður féll um 70 metra niður í gljúfrið við Dettifoss. Hann lifði slysið af.
- 1942 - Í Laxá í Aðaldal veiddist 36 punda lax, sem þá var stærsti lax sem veiðst hafði á flugu.
- 1948 - Vígð var hengibrú á Jökulsá á Fjöllum. Við það styttist vegurinn á milli Norðurlands og Austurlands um 70 kílómetra.
- 1951 - Íslendingar sigruðu í norrænni sundkeppni með miklum yfirburðum er fjórði hver landsmaður synti 200 metra á tímabilinu frá 20. maí til 10. júlí.
- 1970 - Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Sigríður Björnsdóttir kona hans og Benedikt Vilmundarson dóttursonur þeirra fórust í bruna er Ráðherrabústaðurinn á Þingvöllum brann.
- 1970 - Ríkisstjórn Jóhanns Hafsteins tók við völdum og sat í eitt ár.
- 1980 - Greiðslukortaviðskipti hófust á Íslandi er Kreditkort hf gáfu út Eurocard greiðslukortin. Greiðslukort Visa komu út ári síðar.
- 1980 - Fimmta hrina Kröfluelda hófst; hún stóð í rúma viku og var mesta hrinan fram að því.
- 1990 - Hið íslenska biblíufélag varð 175 ára og gáfu þá bankarnir á Íslandi félaginu Guðbrandsbiblíu, sem verið hafði í eigu Halldóru, dóttur Guðbrands Þorlákssonar biskups á Hólum, en hann stóð fyrir fyrstu útgáfu biblíunnar á íslensku.
[breyta] Fædd
[breyta] Dáin
- 1970 - Bjarni Benediktsson, stjórnmálamaður.
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |