Angela Merkel
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dr. Angela Dorothea Merkel (fædd 17. júlí 1954 í Hamborg í Þýskalandi) er þýskur stjórnmálamaður og eðlisfræðingur. Hún er dóttir Lútherstrúar-prests og kennslukonu. Hún ólst upp að mestu í Templin, litlum bæ 70 km norður af Berlín. Á árunum 1973 til 1978 nam hún eðlisfræði við Háskólann í Leipzig. Hún komst á þýska þingið árið 1991 sem þingmaður Mecklenburg-Vorpommern.
Hún varð formaður flokks Kristilegra demókrata (CDU) 10. apríl 2000.
Merkel var kjörin kanslari Þýskalands af þýska sambandsþinginu 22. nóvember 2005.