Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
1. maí er 121. dagur ársins (122. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 244 dagar eru eftir af árinu. Dagurinn er alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins.
- 1566 - Páll Stígsson, höfuðsmaður, drukknaði í tjörn hjá Lambhúsum á Álftanesi.
- 1615 - Aftakaveður gerði á Breiðafirði og fórust áttatíu manns af þrettán skipum.
- 1783 - Ný eyja, sem kölluð var Nýey, myndaðist í eldgosi neðansjávar suðvestur af Reykjanesi, líklega í grennd við Eldeyjarboða. Ári síðar var hún horfin.
- 1889 - Á þingi evrópskra verkalýðsfélaga í París var samþykkt tillaga frá Frökkum um að 1. maí skyldi verða alþjóðlegur frídagur verkafólks.
- 1897 - 54 menn, flestir frá Eyjafirði og Patreksfirði, fórust af fimm skipum í norðan ofviðri með hríð og frosti.
- 1922 - Strandferðaskipið Sterling, hið fyrsta í eigu ríkisins, strandaði við Brimnes í Seyðisfirði. Mannbjörg varð.
- 1923 - Fyrst gengin kröfuganga á 1. maí á Íslandi.
- 1935 - Bifreiðaeinkasala ríkisins tók til starfa og var ein um innflutning og sölu bifreiða í sjö ár.
- 1937 - Kvæði Halldórs Laxness, Maístjarnan, birtist fyrst í æskulýðsblaði.
- 1965 - Þyrla fórst og með henni fimm menn við Kúagerði á leið frá Hvalfirði til Keflavíkur. Um borð voru æðstu menn Varnarliðsins auk flugmanna.