16. maí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Apr – Maí – Jún | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 31 | |||
2006 Allir dagar |
16. maí er 136. dagur ársins (137. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 229 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1457 - Björn ríki Þorleifsson á Skarði á Skarðsströnd var aðlaður og gerður að hirðstjóra.
- 1901 - Skip á leið undan Eyjafjöllum til Vestmannaeyja sökk austur af eyjunum og fórust 27 manns, en einum var bjargað.
- 1929 - Óskarsverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn.
- 1942 - Fyrsta ríkisstjórn undir forsæti Ólafs Thors tók við völdum og sat í sjö mánuði.
- 1952 - Fimm manns fórust með bandarískri flugvél í norðanverðum Eyjafjallajökli. Aðeins eitt lík fannst strax, en hin ekki fyrr en á árunum 1964 og 1966.
- 1959 - Fyrsti landsleikur Íslands í körfuknattleik. Leikurinn var gegn Dönum og fór fram í Kaupmannahöfn.
- 1966 - Verslunin Karnabær opnaði í Reykjavík og hafði mikil áhrif á tísku og klæðaburð ungs fólks á Íslandi.
- 1983 - Vikublaðið Andrés önd kom út á íslensku í fyrsta sinn. Fram að því höfðu Íslendingar lesið það á dönsku.
- 2003 - Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands kvæntist Dorrit Moussaieff.
[breyta] Fædd
[breyta] Dáin
- 1830 - Jean Baptiste Joseph Fourier, franskur stærð- og eðlisfræðingur (f. 1768).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |