Lífræn efnafræði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lífræn efnafræði fjallar um byggingu, eðli, samsetningu og efnahvörf efnasambanda kolefnis.
Efnisyfirlit |
[breyta] Nafnið
Lífræn efnafræði fæst við þau efnasambönd þar sem kolefni er í aðalhlutverki. Nafnið er hugsað til aðgreiningar frá ólífrænni efnafræði. Aðskilnaður er þó eingöngu byggir á sögulegum ástöðum. Löngum var það trú manna að þau efni, sem fyrirfinndust í lífverum væru í grundvallaratriðum ólík þeim efnum sem fyrirfundust í dauðum hlutum og að flokkarnir tveir gegndu ólíkum náttúrulögmálum. Á grundvelli þeirrar hugmyndar kom fram skipting í lífræna og ólífræna efnafræði. Sú hugmynd hefur fyrir löngu verið yfirgefin. En menn skipta þó enn í dag milli lífrænnar og ólífrænnar efnafræði til hægðarauka, þar sem þær tvær undirgreinar efnafræði beita oft mismunandu aðferðum og líkönum.
[breyta] Nafnakerfi lífrænna efna
Nafnakerfi IUPAC er notað til að flokka og nefna lífræn efnasambönd.
[breyta] FLokkar
[breyta] Alifatísk efnasambönd
Alkan - Alken - Díen - Alkýn - Alkýlhalíð - Alkóhól - Aldehýð - Ketón - Karboxýlsýrur - Eter - Ester - Amín - Amíð - Nítríl - Kolvetni - Fitusýrur
[breyta] Arómatísk efnasambönd
Bensen - Tólúen - Xylen - Anilín - Fenól - Naftalín - Antrasen - Fenantren
[breyta] Heterósýklísk efnasambönd
Pýridín - Pýrról - Fúran
[breyta] Fjölliður
[breyta] Eiginleikar lífrænna efna
Gríðarlegur fjöldi lífrænna efna er til. Orsök þessa er hæfileiki kolefnis til þess að mynda keðjur og hringi af mörgum mismunandi stærðum. Mörg kolefnissambönd eru afar hitanæm, og flest sundrast þau undir 300°C. Þau eru ekki eins auðleysanleg í vatni og flest ólífræn sölt, en ólíkt þeim leysast þau vel í lífrænum leysiefnum eins og eter og alkóhólum. Samgild tengi eru í lífrænum efnum.