Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri (skammstafað FSA) er íslenskt sjúkrahús með höfuðstöðvar á brekkunni á Akureyri. Að jafnaði starfa þar 650 manns í um 490 ársstörfum, þar af um 50 læknar, sjúkrarúm eru 184, þar af eru 27 í Seli og 41 á Kristnesi. FSA er hátæknisjúkrahús og er annað stærsta sjúkrahús landsins (á eftir Landspítalanum).
[breyta] Aðstaða
Heildarstærð húsnæðis aðalbyggingar FSA sem staðsett er á Eyrarlandsholti sunnan Lystigarðsins og austan Þórunnarstrætis er um 25 þúsund fermetrar. Þar af eru óinnréttaðar þrjár hæðir í legudeildarálmu spítalans, samtals um 2.500 fermetrar.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri veitir alla almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu. Sjúkrahúsið er þekkingarstofnun sem starfar í nánum tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum.
[breyta] Stjórn & hlutverk
FSA starfar skv. lögum um heilbrigðisþjónustu [1] (nr. 97 28. desember 1990) og er svokallað svæðissjúkrahús sbr. 24. gr. [2] laganna. Sjúkrahúsið heyrir undir heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið. Heilbrigðisráðherra skipar stjórn sjúkrahússins. Þrír stjórnarmanna eru tilnefndir af Akureyrarbæ, einn af starfsmannaráði en formann skipar ráðherra án tilnefningar. Forstjóri er skipaður af heilbrigðisráðherra. Starfandi er framkvæmdastjórn sem skipuð er forstjóra, framkvæmdastjóra fjármála og reksturs, framkvæmdastjóra hjúkrunar og framkvæmdastjóra lækninga. Reksturinn er fjármagnaður úr ríkissjóði en auk þess með þeim sértekjum sem sjúkrahúsið aflar.
Í bréfi heilbrigðisráðherra þann 14. maí árið 1971 var sjúkrahúsinu mörkuð sú stefna að "vera deildaskipt sjúkrahús með ákveðinni sérdeildaaðstöðu og með nauðsynlegum stoðdeildum". Skyldi það fyrst og fremst gegna þríþættu hlutverki:
- Að vera almennt sjúkrahús fyrir Akureyri og nærsveitir.
- Að vera sérdeildasjúkrahús fyrir Norðurland, Norðausturland og Austfirði að hluta.
- Að vera aðal varasjúkrahús landsins utan höfuðborgarsvæðisins með tilliti til almannavarna.