Suðurkjördæmi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Suðurkjördæmi er eitt af kjördæmum Íslands. Það hefur 10 sæti á Alþingi, þar af eitt jöfnunarsæti. Kjördæmið er hið gamla Suðurlandskjördæmi að viðbættum Hornafirði sem áður tilheyrði Austurlandskjördæmi og Suðurnesjum sem áður voru í Reykjaneskjördæmi. Þingmenn Suðurkjördæmis eru:
# | Þingmaður | Flokkur |
1 | Margrét Frímannsdóttir | S |
2 | Drífa Hjartardóttir | D |
3 | Guðni Ágústsson | B |
4 | Lúðvík Bergvinsson | S |
5 | Guðjón Hjörleifsson | D |
6 | Hjálmar Árnason | B |
7 | Björgvin G. Sigurðsson | S |
8 | Kjartan Ólafsson | D |
9 | Magnús Þór Hafsteinsson | F |
10 | Jón Gunnarsson | S |
Í Suðurkjördæmi eru sveitarfélögin: Sveitarfélagið Hornafjörður, Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Ásahreppur, Vestmannaeyjabær, Gaulverjabæjarhreppur, Sveitarfélagið Árborg, Hraungerðishreppur, Villingaholtshreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus, Grindavíkurkaupstaður, Sandgerðisbær, Gerðahreppur, Reykjanesbær og Vatnsleysustrandarhreppur.
[breyta] Tengill
Kjördæmi Íslands | |
---|---|
Reykjavíkurkjördæmi norður | Reykjavíkurkjördæmi suður | Norðvesturkjördæmi | Norðausturkjördæmi | Suðurkjördæmi | Suðvesturkjördæmi | |