Oort-skýið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Oort-skýið er tilgáta um kúlulaga ský úr halastjörnum, staðsett í 50.000 til 100.000 stjarnfræðieininga fjarlægð frá sólinni. Þetta er u.þ.b. 1000 sinnum fjarlægðin frá sólinni til ystu reikistjörnunnar Plútós, eða u.þ.b. eitt ljósár sem er fjórðungur fjarlægðarinnar frá sólinni til Proxima Centauri (þeirrar fastastjörnu sem næst er sólinni).
Engar beinar athuganir hafa verið gerðar sem staðfesta tilvist skýsins, en það er talið vera uppspretta flestra eða allra halastjarna sem ferðast inn í sólkerfið (sumar halastjörnur sem koma með skömmu millibili gætu þó komið úr Kuiper-beltinu) og byggir tilgátan um skýið á athugunum á sporbrautum halastjarna.
Sólkerfið |
Sólin | Merkúríus | Venus | Jörðin (Tunglið) | Mars | Smástirnabeltið |
Júpíter | Satúrnus | Úranus | Neptúnus | Plútó | Kuiper-beltið | Oort-skýið |
Sjá einnig stjarnfræðileg fyrirbæri, og fyrirbæri í sólkerfinu, eftir radíus og massa |