Haag
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Haag (hollenska: Den Haag, áður 's-Gravenhage) er stjórnsýsluleg höfuðborg Hollands og höfuðborg héraðsins Suður-Hollands. Innan borgarmarka bjuggu 472.087 árið 2005 en að úthverfum meðtöldum er íbúafjöldinn u.þ.b. 700.000. Borgin er sú þriðja stærsta í Hollandi á eftir Amsterdam og Rotterdam.
Í borginni eru báðar deildir hollenska þingsins, skrifstofur ráðuneyta, hæstiréttur, sendiráð erlendra ríkja og þar er aðsetur Beatrix drottningar. Engu að síður er Amsterdam skilgreind sem höfuðborg Hollands í stjórnarskrá.
Fjölmargar alþjóðastofnanir hafa aðsetur eða skrifstofur í Haag, sérstaklega alþjóðlegir dómstólar og gerðadómar. Þar eru meðal annars:
- Alþjóðadómstóllinn, staðsettur í Friðarhöllinni (Vredespaleis).
- Alþjóðasakamáladómstóllinn
- ICTY, stríðglæpadómstóll vegna atburðanna í fyrrum Júgóslavíu.
- Alþjóðagerðardómurinn í Haag, elsta stofnunin sem kemur að lausn alþjóðlegra deilumála.
- Europol, samvinnustofnun lögreglu í Evrópusambandsríkjum.