Hýpatía
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hýpatía (370 – 415) var grískur heimspekingur og stærðfræðingur og starfaði við háskólann í Alexandríu. Hún er fyrsta konan, sem nafngreind er í sögu stærðfræðinnar. Faðir hennar var einnig stærðfræðingur og hét Þeon. Margir frægir stærðfræðingar og heimspekingar þessa tíma leituðu til Hýpatíu, því að hún var afskaplega virt. Hún skrifaði greinar um verk Díofantosar og Apolloníosar. Hún var myrt á hryllilegan hátt af kristnum múgi og er sá atburður gjarnan talinn marka upphaf hnignunar Alexandríu sem menningarmiðstöðvar.