Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Brennisteinn er frumefni með efnatáknið S og er númer sextán í lotukerfinu. Sem víðfundinn, bragðlaus, lyktarlaus, fjölgildur málmleysingi, brennisteinn er best þekktur í formi gula kristalla en finnst jafnframt einnig sem súlfíð og súlfat. Það er aðallega á eldfjallasvæðum sem að það finnst í sinni eiginlegu mynd. Það er mikilvægt efni í öllum lifandi verum og er uppistaða í fjölda amínósýra og finnst þar af leiðandi einnig í mörgum prótínum. Það er aðallega notað framleiðslu á áburði, en er líka mikið notað við framleiðslu á byssupúðri, hægðarlyfjum, eldspýtum, skordýraeitri og sveppaeyði.