7. febrúar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jan – Febrúar – Mars | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | ||||
2006 Allir dagar |
7. febrúar er 38. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 327 dagar (328 á hlaupári) eru eftir af árinu.
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
- 1550 – Júlíus III varð páfi.
- 1613 - Mikhail Romanov varð keisari í Rússlandi.
- 1863 - HMS Orpheus sökk utan við Auckland á Nýja-Sjálandi. 189 manns fórust.
- 1882 – Síðasti hnefaleikabardaginn í þungvigt án hanska fór fram í Mississippi.
- 1898 - Emile Zola var leiddur fyrir rétt fyrir að gefa út 'Ég ákæri' (J'Accuse).
- 1900 – Verkamannaflokkurinn var stofnaður í Bretlandi.
- 1914 - Charlie Chaplin birtist í fyrsta sinn sem Litli flækingurinn.
- 1940 - Walt Disney gaf út teiknimyndina um Gosa.
- 1942 - Húsmæðraskóli Reykjavíkur tók til starfa undir stjórn Huldu Á. Stefánsdóttur.
- 1962 – Bandaríkin bönnuðu allan inn- og útflutning frá Kúbu.
- 1964 – Bítlarnir komu fyrst til Bandaríkjanna.
- 1971 – Konur fengu kosningarétt í Sviss.
- 1974 - Grenada öðlaðist sjálfstæði frá Bretlandi.
- 1974 - Fyrsta lending Concorde-þotu á Keflavíkurflugvelli. Á leiðinni frá Frakklandi flaug hún á tvöföldum hljóðhraða.
- 1985 – ‘New York, New York’ varð opinber söngur New York borgar.
- 1986 - Jean-Claude Duvalier flúði Haítí.
- 1990 – Sovétríkin féllu: Miðstjórn kommúnistaflokksins samþykkti að aðrir flokkar gætu tekið þátt í stjórn landsins.
- 1991 – Fyrsti lýðræðislegi forseti Haítí, Jean-Bertrand Aristide, tók við embætti.
- 1992 – Evrópusambandið stofnað.
- 1998 – Vetrarólympíuleikarnir hófust í Nagano, Japan.
- 1999 - Abdullah prins tók við krúnunni í Jórdaníu eftir dauða föður síns, Husseins konungs.
[breyta] Fædd
- 1812 - Charles Dickens, breskur rithöfundur (d. 1870).
- 1877 - Godfrey Harold Hardy, breskur stærðfræðingur (d. 1947).
- 1885 - Sinclair Lewis, bandarískur rithöfundur (d. 1951)
- 1962 - Eddie Izzard, breskur leikari og grínisti.
[breyta] Dáin
- 1560 - Bartolommeo Bandinelli, ítalskur myndhöggvari (f. 1493)
- 1693 - Paul Pellisson, franskur rithöfundur (f. 1624)
- 1799 - Qianlong, keisari í Kína (f. 1711)
- 1823 - Ann Radcliffe, enskur rithöfundur (f. 1764)
- 1878 – Píus páfi IX (f. 1792)
- 1979 - Josef Mengele, þýskur stríðsglæpamaður (f. 1911)
- 1999 - Hussein konungur Jórdaníu (f. 1935)
[breyta] Hátíðis- og tyllidagar
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |