4. apríl
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mar – Apríl – Maí | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | ||||||
2006 Allir dagar |
4. apríl er 94. dagur ársins (95. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 271 dagur er eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1581 - Francis Drake lauk hringferð sinni um heiminn og var aðlaður af Elísabetu I Englandsdrottningu.
- 1897 - Hið íslenska prentarafélag var stofnað. Það er elsta starfandi verkalýðsfélag á Íslandi og er nú hluti af Félagi bókagerðarmanna.
- 1905 - 370.000 manns fórust í jarðskjálfta nálægt Kangra á Indlandi.
- 1939 - Faisal II varð konungur Íraks.
- 1949 - Tólf þjóðir skrifuðu undir Norður-Atlantshafssáttmálann og mynduðu þannig Atlantshafsbandalagið (NATO)
- 1956 - Alþýðubandalagið var stofnað.
- 1964 - Bítlarnir áttu smáskífur í öllum fimm efstu sætum bandaríska Billboard listans.
- 1968 - Martin Luther King yngri var myrtur.
- 1970 - Rúgbrauðsgerðin í Reykjavík stórskemmdist í eldi. Húsið var gert upp og hýsir nú veislusali ríkisins.
- 1974 - Seðlabankinn hóf að selja þjóðhátíðarmynt að verðgildi 500 kr., 1000 kr. og 10000 kr. og rann ágóðinn í þjóðhátíðarsjóð.
- 1984 - Winston Smith, aðalpersóna skáldsögu George Orwell, Nítjánhundruð áttatíu og fjögur, byrjaði að skrifa í leynilega dagbók sína.
- 1991 - Síðasta bindi Alþingisbóka Íslands kom út. Bindin eru 17 alls og stóð útgáfan yfir frá 1912. Í þeim segir frá atburðum á Alþingi frá 1593 til 1800.
[breyta] Fædd
- 1915 - Muddy Waters, tónlistarmaður (d. 1983).
- 1928 - Maya Angelou, ljóðskáld og skáldsagnahöfundur.
- 1932 - Andrei Tarkovskí, kvikmyndaleikstjóri (d. 1986).
- 1932 - Anthony Perkins, kvikmyndaleikari (d. 1992).
- 1957 - Aki Kaurismäki, finnskur kvikmyndaleikstjóri.
- 1962 - Gyrðir Elíasson, rithöfundur.
- 1965 - Robert Downey Jr., leikari.
[breyta] Dáin
- 1929 - Karl Benz, þýskur verkfræðingur og bifreiðahönnuður (f. 1844).
- 1968 - Martin Luther King yngri, bandarískur mannréttindafrömuður.
- 1979 - Ali Bhutto, forseti og forsætisráðherra Pakistans.
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |