11. mars
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Feb – Mars – Apr | ||||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La | ||
1 | 2 | 3 | 4 | |||||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | ||
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | ||
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | ||
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |||
2006 Allir dagar |
11. mars er 70. dagur ársins (71. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 295 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1513 - Leó X (tíundi) kjörinn páfi.
- 1810 - Napóleon Bonaparte gekk að eiga Maríu Lovísu, dóttur Frans I af Austurríki.
- 1894 - Fyrsta kókflaskan var seld í sælgætisbúð í bænum Vicksburg í Mississippi.
- 1941 - Línuveiðarinn Fróði varð fyrir árás þýsks kafbáts suður af Vestmannaeyjum. Fimm sjómenn fórust í árásinni.
- 1971 - Lög voru sett um happdrættislán ríkissjóðs til fjáröflunar fyrir vega- og brúargerð um Skeiðarársand. Þremur árum síðar var vegurinn opnaður.
- 1983 - Donald D. Maclean, einn þeirra sem njósnuðu í Bretlandi fyrir Rússa, var jarðsettur í Moskvu.
- 1984 - Vélbáturinn Hellisey frá Vestmannaeyjum sökk og fórust allir nema einn maður, Guðlaugur Friðþórsson, sem náði að synda alla leið í land, um 5 km langa leið.
- 1985 - Mikhail Gorbatsjov varð leiðtogi Sovétríkjanna.
- 1990 - Litháen varð sjálfstætt ríki með Vitautas Landsbergis sem forseta.
- 2004 - Sprengjutilræði í farþegalest í Madrid. 190 manns fórust.
- 2006 - Íslandsbanki breytir nafni sínu og ásýnd. Nýtt nafn er Glitnir.
[breyta] Fædd
- 1952 - Douglas Adams, rithöfundur (d. 2001).
[breyta] Dáin
- 1955 - Alexander Fleming, skoskur gerlafræðingur, sá sem uppgötvaði penicillínið.
- 2006 - Slobodan Milošević, fyrrum forseti Júgóslavíu.
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |