13. mars
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Feb – Mars – Apr | ||||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La | ||
1 | 2 | 3 | 4 | |||||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | ||
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | ||
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | ||
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |||
2006 Allir dagar |
13. mars er 72. dagur ársins (73. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 293 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1881 - Alexander II, keisari í Rússlandi, myrtur með sprengju í nágrenni hallar sinnar. (Þetta gerðist 1. mars í júlíska tímatalinu, sem þá var í notkun í Rússlandi.)
- 1883 - Skeiðarárhlaup hófst. Hlaupið var eitt hið mesta sem komið hafði í ána, en fór eingöngu yfir eyðisanda og olli því ekki skemmdum.
- 1897 - Einar Benediktsson gerði tillögu um að fáni Íslands yrði hvítur kross í bláum feldi í grein sem hann skrifaði í blaðið Dagskrá.
- 1937 - Fyrsta Skíðamót Íslands var haldið á Hellisheiði. Skagfirðingar urðu sigursælir.
- 1961 - Landslið Íslands í handknattleik varð í 6. sæti á heimsmeistaramóti.
- 1964 - Sextíu þjóðkunnir menn skoruðu á Alþingi að takmarka sendistyrk sjónvarpsstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli við herstöðina, svo að almenningur á Íslandi skaðaðist ekki af henni.
- 1974 - Græna byltingin var kynnt í Rekjavík, en samkvæmt þeim hugmyndum skyldi skipuleggja öll opin svæði og gera göngustíga og hjólreiðabrautir.
- 1977 - Hreinn Halldórsson varð Evrópumeistari í kúluvarpi innanhúss með 20,59 metra löngu kasti.
- 1981 - Kvikmyndin Punktur, punktur, komma, strik var frumsýnd.
- 1982 - Bikarúrslitaleik Tottenham og Liverpool var sjónvarpað beint á Íslandi og var þetta fyrsta beina útsending hér á landi frá erlendum íþróttaviðburði.
- 1983 - Samtök um Kvennalista voru stofnuð.
[breyta] Fædd
- 1939 - Neil Sedaka, bandarískur söngvari og lagahöfundur.
- 1942 - Dave Cutler, bandarískur forritari.
- 1942 - Scatman John, bandarískur söngvari (d. 1999).
- 1960 - Adam Clayton, írskur bassaleikari (U2).
- 1967 - Andrés Escobar, kólumbískur knattspyrnumaður (d. 1994).
- 1973 - Edgar Davids, hollenskur knattspyrnumaður.
- 1973 - David Draiman, bandarískur tónlistarmaður (Disturbed).
[breyta] Dáin
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |