Saxelfur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Saxelfur (tékkneska: Labe; þýska: Elbe; latína: Albus; danska: Elben; sorbneska: Łobjo; pólska: Łaba, - komið úr norrænu: elfr, „fljót“) er eitt af stærstu fljótum Evrópu ein af helstu siglingaleiðum um Mið-Evrópu. Upptök fljótsins eru í Tékklandi við norðurlandamæri Tékklands og Póllands. Það rennur síðan 1165 km leið um Tékkland og Þýskaland út í Norðursjó við Cuxhaven. Við fljótið standa margar stórar borgir, svo sem Dresden, Magdeburg og Hamborg.