Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
San Francisco - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

San Francisco

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

San Francisco
The City by the Bay
Skjaldarmerki Staðsetning á korti
Mynd:Sfseal.gif Kort sem sýnir staðsetningu í Kaliforníu
Grunnupplýsingar
Stofnár: 1792
Land: Bandaríkin
Ríki: Kalifornía
Sýsla: San Francisco
Tímasvæði: Pacific Standard Time (UTC-8)
Íbúatala:
- Að nágrannasveitarfélögum meðtöldum:
744.230 (1. júlí 2004)
4.157.377
Þéttleiki byggðar: 6.151 íbúar/km²
Hæð lands: 0–282 metrar yfir sjávarmáli
Flatarmál: 600,7 km²
þar af 121,0 km² land
Póstnúmer: frá 94101 til 94188
Forval síma: 415
Vefsíða: www.ci.sf.ca.us
Stjórnmál
Borgarstjóri: Gavin Newsom


San Francisco er fjórða stærsta borg Kaliforníuríkis og er á vesturströnd Bandaríkjanna. Hún liggur á milli San Francisco-flóa og Kyrrahafsins. Þar búa 744.230 manns (1. júlí 2004) en ef borgin San José, sem liggur þétt upp að San Francisco, er talin með búa um 7 milljónir á svæðinu og er það þá fjórða fjölmennasta svæði Bandaríkjanna.

Helstu kennileiti eru Golden Gate brúin, Alcatraz, Transamerica Pyramid byggingin og sporvagnarnir.

Sumir segja að San Francisco sé „evrópskasta“ borgin í Norður-Ameríku.

Boðið er upp á beint flug til borgarinnar frá Íslandi og er hún eina borgin á vesturströnd Bandaríkjanna sem getur státað af því.

Efnisyfirlit

[breyta] Landhættir

[breyta] Lega

Borgin liggur á norðurodda San Francisco skagans, sem myndar San Francisco flóa. Borgarmörkin afmarkast í norðri af Golden Gate brúnni, í vestri af Kyrrahafinu, í austri af San Francisco-flóanum og í suðri af hinum 300m háu Twin-Peaks hólum, sem spænskir trúboðar nefndu vegna útlits síns Los Pechos de la Chola eða Brjóst indjánastelpunnar.

 Gervihnattamynd af svæðinu
Enlarge
Gervihnattamynd af svæðinu

San Francisco er einnig þekkt fyrir samtals 42 hæðir sínar, sem eru allt að 30m háar. Þær eru gjarnan mjög brattar og eru ástæða þess að sporvagnakerfi var tekið í notkun í borginni árið 1873.

Borgin er ein mikilvægasta hafnarborg vesturstrandar Bandaríkjanna, aðallega vegna mjög góðra náttúrulegra hafnaraðstæðna.

Í og við flóann er að finna eyjarnar Treasure Island, Farallon Island að ógleymdri fyrrum fangaeyjunni Alcatraz, sem nú hýsir safn.

[breyta] Jarðfræði

Sökum nálægðar borgarinnar við San Andreas misgengið eru jarðskjálftar tíðir. Sá stærsti kom 18. apríl 1906 og var 7,8 á Richter. Honum fylgdu miklir brunar og eyðilagðist stærsti hluti San Francisco.

Árið 1989 kom Loma-Prieta jarðskjálftinn, sem er síðasti stóri skjálftinn á svæðinu. Hann var 7,1 á Richter og fylgdu honum miklar skemmdir á mannvirkjum, sérstaklega á samgöngumannvirkjum.

[breyta] Hverfaskipting

Í borginni hafa innflytjendur myndað sérstök hverfi eftir uppruna sínum, sérstaklega Kínverjar og Japanir. Kínahverfi San Francisco er ein stærsta byggð Kínverja utan Kína. Þá eru önnur hverfi oft kennd við einhverja hópa íbúa þeirra eða staðalímyndir og eru þeirra helst:

  • Tenderloin er hverfi Víetnama
  • Crocker Amazon er hverfi Filippseyinga
  • North Beach er ítalska hverfið
  • French Quarter eða franska hverfið
  • Richmond District er sagt hverfi Íra og Rússa
  • Haight-Ashbury var á 7. áratugnum einn þekktasti samkomustaður hippa
  • Castro ku hafa hæsta hlutfall samkynhneigðra í Bandaríkjunum
  • Soma er frægt fyrir fjölmörg gallerí og listir.
  • Richmond er hverfi þar sem fjölmargir asískir innflytjendur búa.

[breyta] Loftslag

Lega borgarinnar við Kyrrahafið hefur talsverð áhrif á loftstlagið, sem líkist annars mjög miðjarðarhafsloftslagi. Veðrið er milt allt árið um kring með svölum, nær úrkomulausum sumrum og hlýjum vetrum. Dagshitinn að sumarlagi er yfirleitt milli 15 og 25 gráður á celsius, en yfir veturinn frystir sjaldan. Sumarhitinn er þónokkuð lægri en annars staðar í Kaliforníu. Hlýjasti mánuðurinn er september og mesta úrkoman er milli nóvembers og mars. San Francisco er þekkt fyrir þoku sem kemur á morgnanna inn frá hafinu.

[breyta] Saga

[breyta] Byggð Indjána og fyrstu Evrópubúarnir

Upprunalega var San Francisco-flói byggður af Muwekma Ohlone Indjánum, sem var nær útrýmt á 19. öld.

Á 16. öld sendu Spánverjar tvo leiðangra í norður eftir vesturströnd Ameríku. Hernan Cortés uppgötvaði Kaliforníu-skaga og kannaði Juan Rodriguez Cabrillo hann 10 árum seinna. Þótt margir aðrir landkönnuðir hafi á 16. öld farið um Kaliforníu (t.d. Sir Francis Drake) fannst San Francisco flói ekki fyrr en árið 1775, líklega vegna tíðrar þoku sem umlykur flóann.

1776 hófst landnám Evrópumanna á því landsvæði þar sem borgin stendur nú. Spænskir hermenn og trúboðar stofnuðu kirkjuna Mission Dolores 29. júní það ár við lón sem þeir nefndu Nuestra Senora de los Dolores, þar sem nú er Presidio (virki) við Golden Gate. Trúboðanir nefndu borgina till heiðurs heilögum Frans af Assisi og hét borgin þá San Francisco de Asís, sem síðar varð Saint Francis og enn seinn aftur San Francisco.

[breyta] Frá 19. öld til okkar tíma

Eftir stríð Bandaríkjanna við Mexíkó varð borgin bandarísk árið 1848. Gullaldartímabil borgarinnar hófst án efa með gullæðinu í Kaliforníu 1848 og dregur Golden Gate nafn sitt af þessu tímabili. Íbúatalan óx frá um 900 upp í yfir 20.000 á örfáum árum. Mörgum lá svo á að komast í land að þeir skildu báta sína í höfninni sem fylltist fljótlega. Fljótt fór að bera á skorti á landrými og brugðu men þá á það ráð að gera landfyllingar út í höfnina, og stendur hluti miðbæjarins enn þann dag í dag á þessari landfyllingu.

 Golden Gate brúin
Enlarge
Golden Gate brúin

Á þessum tíma þróaðist borgin einnig í miðpunkt viðskipta í Kaliforníu. Bæði bankar (t.d. Wells Fargo) voru stofnaðir sem og mörg nafntoguð fyrirtæki eins og Levi Strauss & Co. og Ghirardelli Chocolate Company.

Að morgni 18. apríl 1906 skók jarðskjálfti borgina. Jarðskjálftinn og bruninn sem fylgdi í kjölfarið eyðilögðu borgina að stærstum hluta. Talið er að um 700 hafi látist en sumir telja töluna þrisvar eða fjórum sinnum hærri. Bygging trúboðanna skemmdist ekkert og er hún því elsta bygging svæðisins í dag.

Árið 1939 var heimssýningin haldin á Treasure Island undir yfirskriftinni Golden Gate International Exposition. Eyjan er landfylling og var sérstaklega búin til við hlið Yerba Buena-eyju fyrir heimssýninguna.

1945 var haldin eftirstríðsráðstefna í San Francisco, sem samdi Stofnskrá Sameinuðu þjóðanna.

Á sjöunda áratugi 20. aldar varð borgin að miðdepli bandarísku 68-hreyfingarinnar. Hippar fögnuðu sumarið 1967, Summer of Love, í borginni. Hljómsveitir á borð við Grateful Dead, Jefferson Airplane og Janis Joplin höfðu mikil áhrif á rokktónlist um allan heim. Lag með Scott McKenzies San Francisco (Be Sure to Wear Some Flowers In Your Hair) varð að þjóðlagi borgarinnar og komst á topp vinsældarlista um allan heim.

Á áttunda áratugnum byrjuðu samkynhneigðir að flytja í borgina í stórum stíl, sérstaklega í Castro hverfið. Borgin hefur verið kölluð helsta borg samkynhneigðra í Bandaríkjunum og hafa samkynhneigðir á síðustu árum haft mikil áhrif á borgarpólitíkina.

Í lok 20. aldar varð borgin og nærliggjandi Silicon Valley að brennidepli tölvuvæðingar og internetbyltingar og fluttust mörg hugbúnaðarfyrirtæki, athafnamenn og markaðsfræðingar til San Francisco og höfðu mikil áhrif í viðskiptalífi borgarinnar. Mörg verkamannahverfi breyttust í hátískuhverfi og rauk fasteignaverð upp á þessum tíma.

Silicon Valley.

[breyta] Fólkið

San Francisco er ein þéttbyggðasta borg Bandaríkjanna. Hvítir eru 50% íbúar, 31% asískir, 14% af rómönskum uppruna og 8% af afrískum uppruna. Öfugt við flest önnur samfélög búa fleiri menn en konur í San Francisco og er hlutfallið 103,1 á móti 100.

[breyta] Menning, daglegt líf og kennileiti

San Francisco er enn í fremstu röð þegar kemur að bandarískri samtímamenningu.

[breyta] Kennileiti

 Transamerica Pyramid
Enlarge
Transamerica Pyramid

Frægasta kennileiti borgarinnar er án efa Golden Gate brúin sem áður segir. Einnig er Transamerica Pyramid skrifstofubyggingin þekkt merki. Elsta byggingin er Mission Dolores og var reist 1776 af Spánverjum.

Fjöldi almenningsgarða er í borginni, m.a. Golden Gate Park, 'Yerba Buena Park og Buena Vista Park, en sá síðastnefndi er elsti garðurinn eða frá 1867.

[breyta] Söfn

 Alcatraz eyjan og fangelsið
Enlarge
Alcatraz eyjan og fangelsið
  • Alcatraz, áður fangelsi, er nú orðið safn sem varðveitir sögu eyjarinnar sem vita, virkis og fangelsis.
  • The Science Center er stórt og nútímalegt vísindasafn
  • California Academy of Science er náttúrumynjasafn þar sem m.a. er hægt að skoða eftirlíkingu af jarðskjálfta.
  • Telegraph Hill og hinn 64m hái Coit Tower hafa frábært útsýni yfir flóann.
  • Asian Art Museum sýnir listmuni frá Asíu
  • The Cable Car museum sýnir ýmsar hliðar sporvagnsins.
  • The Californian Palace of the Legion of Honor er safn sem sýnir safn sitt af evrópskum listaverkum og sérstökum verkum franskra listamanna.
  • San Francisco Museum of Modern Art býður upp á nútímalist með breytilegum sýningum
  • The Wax Museum sýnir ýmsar frægar persónur í formi vaxmynda
  • de Young Museum er safn í Golden Gate-garðinum
  • Palace of Fine Arts
  • Comic Art Museum er einstakt sinnar tegundar í Bandaríkjunum. Það á yfir 6000 eintök af teiknimyndum, teiknimyndasögum og dagblaðs-teiknimyndasögum.
  • Fort Mason var áður hersvæði en er nú opið öllum.

[breyta] Íþróttir

San Francisco séð frá Twin Peaks.
Enlarge
San Francisco séð frá Twin Peaks.

San Francisco er heimabær þriggja bandarískra stórliða

  • San Francisco 49ers (ruðningur)
  • San Francisco Giants (hafnabolti)
  • San Francisco Pilots ( körfubolti)

[breyta] Háskólar

San Francisco hefur fjölda háskóla og eru þeirra frægastir

  • University of San Francisco var fyrsti háskólinn á vesturströnd Bandaríkjanna. Í dag er hann sérstaklega þekktur fyrir lagadeild sína, sem hefur getið sér mjög góðan orðstír.
  • University of California (UCSF) er einnig í San Francisco og er leiðandi á sviði heilbrigðisvísinda

Þá eru tveir þekktir háskólar í nágrenni San Francisco:

  • University of California, Berkely er 19 km frá borgarmörkunum
  • Stanford er rúmlega 50 km suður af borginni í Palo Alto.

[breyta] Fyrirtæki frá San Francisco

Í San Francisco eru ýmsar höfuðstöðvar stórfyrirtækja. Helst ber að nefna VISA greiðslukortafyrirtækið, GAP fatakeðjuna, Levi Strauss & Co. gallabuxnafyrirtækið, Walls Fargo Bank og Industrial Light and Magic fyrirtæki George Lucas, an það fyrirtæki útbýr tæknibrellur í myndum á borð við Harry Potter og Star Wars. Önnur fyrirtæki eru CNET, LucasArts og Bechtel Corporation. Fyrirtæki sem eru nálægt San Francisco en tæknilega utan borgarmarkanna eru m.a. Hewlett Packard, Intel og Yahoo!. San Francisco er einnig mjög mikilvæg fjármálaborg í Kaliforníu.

Í lok 20. aldar fluttust mörg hugbúnaðarfyrirtæki til San Francisco og upplifði borgin mikinn vöxt við það.

[breyta] Þekktir einstaklingar frá San Francisco

  • Ansel Adams, ljósmyndari
  • Simon Rex, leikari
  • Luis Walter Alvarez, eðlisfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi
  • Dorothy Arzner, leikstjóri
  • Matthew Barney, listamaður og barnsfaðir Bjarkar Guðmundsdóttur
  • Bill Bixby, leikari
  • Lisa Bonet, leikkona
  • Benjamin Bratt, leikari
  • Divine Brown, vændiskona
  • Owen Chamberlain, eðlisfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi
  • Jule Gregory Charney, veðurfræðingur
  • Margaret Cho, leikkona og grínisti
  • Delmer Daves, leikstjóri og handritshöfundur
  • Philip DeGuere, handritshöfundur
  • Mike Dirnt, tónlistarmaður og stofnmeðlimur hljómsveitarinnar [Green Day]]
  • Isadora Duncan, dansari
  • Clint Eastwood, leikari
  • Joseph Erlanger, taugeðlisfræðingur
  • Leon Fleisher, píanóleikari
  • Hugo Friedhofer, kvikmyndatónskáld
  • Robert Frost, skáld og Pulitzer-verðlaunahafi
  • Jerry Garcia, tónlistamaður
  • Clifford Geertz, þjóð- og fornleifafræðingur
  • Danny Glover, leikari
  • Kirk Hammet, tónlistamaður
  • William Randolph Hearst, útgefandi og fjölmiðlakóngur
  • Patty Hearst, leikkona
  • Joseph Hunt, tennisspilari
  • Frederick Jacobi, tónskáld
  • Paul Kantner, tónlistarmaður og meðstofnandi sveitarinnar Jefferson Airplane
  • Jason Kidd, körfuboltaspilari
  • Pierre Koenig, arkitekt
  • Bruce Lee, leikari
  • Mervyn LeRoy, leikstjóri
  • Monica Lewinsky, fyrrv. lærlingur í Hvíta húsinu
  • Jack London, rithöfundur
  • Courtney Love, tónlistamaður og leikkona
  • Hank Luisetti, körfuboltaspilari
  • Greil Marcus, rithöfundur
  • Brent McCall, tónskáld
  • Robert McNamara, fyrrv. varnarmálaráðherra Bandaríkjanna
  • Gordon Moore, meðstofnandi Intel og höfundur Moore lögmálsins
  • Lindley Murray, tennisleikari
  • Allen Newell, tölvufræðingur og gervigreindarsálfræðingur
  • Julia Platt, stjórnmálamaður
  • Dennis Ross, þekktur diplómati
  • Alma Rubens, leikkona í þöglum myndum
  • Pierre Salinger, blaðamaður og blaðafulltrúi John F. Kennedy og Lyndon B. Johnson
  • Liev Schreiber, leikari
  • Frederick Seitz, rektor Rockefeller University
  • Thomas E. Selfridge, fyrsta fórnarlamb flugslyss
  • Richard Serra, myndlistamaður
  • Alicia Silverstone, leikkona
  • Orenthal James Simpson (betur þekktur sem O.J. Simpson), leikari og íþróttamaður
  • Taran Noah Smith, leikari
  • Lemony Snicket, rithöfundur
  • Lincoln Steffens, blaðamaður og útgefandi
  • David Talbot, blaðamaður
  • James Patrick Walsh, leikari
  • Caspar Weinberger, fyrrverandi landvarnarráðherra Bandaríkjanna
  • Bob Weir, gítarleikari
  • Frank Wolff, leikari
  • Natalie Wood, leikkona
  • John W. Young, geimfari
San Francisco að nóttu
Enlarge
San Francisco að nóttu

[breyta] Tenglar

Þetta er gæðagrein
Wikimedia Commons merkið
Margmiðlunarefni tengt San Francisco er að finna á Wikimedia Commons.
Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com