Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Philadelphia - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Philadelphia

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Philadelphia
Borg bróðurkærleikans
Staðsetning á korti
Kort sem sýnir staðsetningu í suðaustur Pennsylvaníu
Grunnupplýsingar
Stofnár: 1682 (27. október)
Land: Bandaríkin
Ríki: Pennsylvanía
Sýsla: Philadelphia
Tímasvæði: Eastern Standard Time (UTC-5)
Íbúatala:
- Að nágrannasveitarfélögum meðtöldum:
1.470.151 (2004)
5.751.803
Þéttleiki byggðar: 4.337,3 íbúar/km²
Flatarmál: 349,9 km²
þar af 330,3 km² land, 19,6 km² undir vatni
Forval síma: 215
Vefsíða: www.phila.gov
Gælunafn: Philly, Borg bróðurkærleikans, Quaker borgin
einkunnarorð: Philadelphia maneto (megi bróðurkærleikurinn vara)
Stjórnmál
Borgarstjóri: John F. Street (D)

Philadelphia er fimmta stærsta borg Bandaríkjanna og stærsta borg Pennsylvaníu. Síðan árið 1854 hafa borgarmörkin verið þau sömu og sýslumörk Philadelphia sýslu og síðan árið 1952 hafa borgar- og sýsluyfirvöld verið þau sömu en samt sem áður er sýslan enn til sem sérstakt svæði í Pennsylvaníu. Íbúafjöldi borgarinnar 1. júlí 2004 var áætlaður 1.470.151. Í borginni er þriðji stærsti miðbæjarkjarni Bandaríkjanna, á eftir New York og Chicago. Philadelphia er næststærsta borgin á austurströnd Bandaríkjanna á eftir New York.

Stórborgarsvæði Philadelphiu er það fjórða stærsta í Bandaríkjunum samkvæmt núverandi opinberri skilgreiningu en á svæðinu búa um 5,7 milljónir manna.Samkvæmt öðrum skilgreiningum er stórborgarsvæði Philadelphiu það sjötta stærsta á eftir stórborgarsvæði San Francisco og Washington-Baltimore. Philadelphia er helsta borgin á stórborgarsvæði Delaware dals.

Philadelphia er ein elsta borg Bandaríkjanna og ein sú þýðingamesta í sögu landsins. Á 18. öld var borgin um skamma hríð önnur höfuðborg landsins og fjölmennasta borgin. Á þeim tíma var hún mikilvægari en bæði Boston og New York borg í stjórnmálum og viðskiptum en Benjamin Franklin átti mikinn þátt í að gera borgina að mikilvægri miðstöð stjórnmála, viðskipta og menntunar.

Fram til ársins 1854, þegar borgarmörkin urðu þau sömu og sýslumörk Philadelphiu sýslu, afmarkaðist borgin af South Street, Vine Street, Delaware fljóti og Schuylkill ánni. Með stækkun borgarinnar bættust við þau svæði sem í dag eru Vestur Philadelphia, Suður Philadelphia, Norður Philadelphia og Norðaustur Philadelphia sem og Þýska hverfið og mörg smærri hverfi.

Philadelphia er einnig einn stærsti háskólabær Bandaríkjanna en í borginni búa um 120.000 háskólanemar, sem stunda nám í háskólum innan borgarmarkanna, en um 300.000 nemendur stunda nám á stórborgarsvæðinu.

Efnisyfirlit

[breyta] Landafræði og veðurfar

[breyta] Landafræði

Gervihnattamynd af Philadelphiu tekin af Landsat 7 gervihnetti Nasa. Greina má Delaware fljót á myndinni.
Enlarge
Gervihnattamynd af Philadelphiu tekin af Landsat 7 gervihnetti Nasa. Greina má Delaware fljót á myndinni.

Samkvæmt bandarísku hagstofunni United States Census Bureau þekur borgin 369,4 km² (142,6 mi²). Þar af eru 349,9 km² (135,1 mi²) þurrlendi og 19,6 km² (7,6 mi²) undir vatni, en það eru 5,29% alls svæðisins. Helstu vatnsföllin eru Delaware fljót, Schuylkill áin, Cobbs Creek, Wissahickon Creek og Pennypack Creek.

Lægsti punktur innan borgarmarkanna er 3 m (10 fet) yfir sjávarmáli, nærri Fort Mifflin í Suðvestur Philadelphia þar sem Delaware og Schuylkill árnar mætast. Hæsti punkturinn er í Chestnut Hill, 132 m (432 fet) yfir sjávarmáli, nærri Evergreen Place, rétt norðan og vestan við Evergreen Avenue.

[breyta] Veðurfar

Veðurfar er temprað með fjórum árstíðum. Sumrin eru heit og rök, einkum í júlí og ágúst. Haust og voru eru venjulega mild. Úrkoma er að mestu jöfn árið um kring, með um sex til níu rigningardaga á mánuði, að meðaltali um 1068 mm (42 tommur) á ári. Vetur geta verið kaldir en sjaldan fer hitinn niður fyrir -10° C. Snjókoma er afar breytileg. Sumir vetur eru snjóþungir en aðra snjóar lítið. Í miðborginni og úthverfum borgarinnar í New Jersey snjóar venjulega lítið en norðan og vestan við stórborgarsvæðið snjóar meira. Meðalhitinn í janúar er milli -4° C (25° F) og 4° C (39° F). Í júlí er meðalhitinn milli 21° C (70° F) og 30° C (86° F) en þegar hitabylgjur skella á um sumur getur hitinn hæglega náð 35° C (95° F). Mesti kuldi sem skráður hefur verið var -22° C (-7° F) árið 1984 en mesti hiti sem skráður hefur verið var 40° C (104° F) árið 1966. Snemma hausts og seint um vetur er venjulega þurrasti tíminn. Febrúar er úrkomuminnsti mánuðurinn með 69,8 mm (2,74 tommu) úrkomu. Sumrin eru venjulega rök og úrkomumikil en úrkoma er mest í júlí með 111,5 mm (4,39 tommur) úrkoma.

[breyta] Skýjakljúfar

Philadelphia, horft til norðurs. Hæstu byggingarnar tvær eru One Liberty Place og Two Liberty Place.
Enlarge
Philadelphia, horft til norðurs. Hæstu byggingarnar tvær eru One Liberty Place og Two Liberty Place.

Hæstu byggingar borgarinnar eru:

Hæð
Sæti Nafn (ft) (m) Hæðir Byggingarár
1 One Liberty Place 945 288 61 1987
2 Two Liberty Place 848 258 58 1990
3 Mellon Bank Center 792 241 54 1990
4 Bell Atlantic Tower (Verizon Tower) 739 225 55 1991
5 G. Fred DiBona, Jr. Building 625 191 45 1990
6 One Commerce Square 565 172 41 1987
7 Two Commerce Square 565 172 41 1992
8 Philadelphia City Hall 548 167 9 1901
9 1818 Market Street 500 152 40 1974
10 The St. James 498 152 45 2004
11 Loews Philadelphia Hotel 492 150 36 1932
12 PNC Bank Building 491 150 40 1983
13 Centre Square II 490 149 40 1973
14 Five Penn Center 490 149 36 1970
15 One South Broad 472 144 28 1932

[breyta] Hagkerfi

Hagkerfi Philadelphiu byggir einkum á framleiðslu, matvælaiðnaði og fjármálaþjónustu. Í borginni er starfrækt kauphöll, sem er elsta kauphöll Bandaríkjanna.

[breyta] Fólk og menning

[breyta] Lýðfræði

Philadelphia
Fólksfjöldi eftir árum [1]

1790 - 28,522
1800 - 41,220
1810 - 53,722
1820 - 63,802
1830 - 80,462
1840 - 93,665
1850 - 121,376
1860 - 565,529
1870 - 674,022
1880 - 847,170
1890 - 1,046,964
1900 - 1,293,697
1910 - 1,549,008
1920 - 1,823,779
1930 - 1,950,961
1940 - 1,931,334
1950 - 2,071,605
1960 - 2,002,512
1970 - 1,948,609
1980 - 1,688,210
1990 - 1,585,577
2000 - 1,517,550

Árið 2000 voru íbúar Philadelphiu 1.517.550, fjöldi heimila 590.071 og fjölskyldur 352.272 talsins, með 4.337,3 íbúa/km² (11.233,6 íbúa/mi²). 45,0% íbúanna voru hvít, 43,2% af afrískum upruna, 0,2% voru bandarískir frumbyggjar, 4,4% af asískum uppruna, 0,05% voru frá Kyrrahafseyjum, 4,7% voru af öðrum kynþætti og 2,2% voru af fleiri en einum kynþætti. 8,5% íbúanna voru af suður-amerískum uppruna.

Börn undir 18 ára aldri bjuggu á 27,6% heimilanna og 32,1% íbúanna voru hjón í sambúð. 33,8% íbúanna voru einstæðingar.

25,3% borgarbúa voru yngri en 18 ára, 11,1% voru á aldrinum 18 til 24 ára, 29,3% voru á aldrinum frá 25 til 44 ára, 20,3% voru á aldrinum 45 til 64 ára og 14,1% voru 65 ára eða eldri. Aldursmiðgildið var 34 ár. 86,8 karlmenn voru á hverjar 100 konur.

Tekjumiðgildi fyrir hvert heimili í borginni var 30.746 dalir og 37.036 dalir fyrir hverja fjölskyldu. Tekjumiðgildi karlmanna var 34.199 dalir, en kvenna 28.477. 22,9% íbúanna og 18,4% fjölskyldna voru undir fátæktarmörkum. 31,3% allra undir 18 ára og 16,9% allra eldri en 65 ára voru undir fátæktarmörkum.

[breyta] Matur

Philadelphia er þekkt fyrir samlokur, sem kallast „cheesesteaks“ og eru gjarnan kenndar við borgina, þ.e. Philadelphia cheesesteak eða einfaldlega Philly cheesesteak.

[breyta] Fjölmiðlar

[breyta] Prentmiðlar

Í Philadelphiu eru gefin út tvö stór dagblöð, Philadelphia Inquirer og Philadelphia Daily News. Einnig koma út vikuleg blöð, þ.á m. Philadelphia Business Journal, Philadelphia Weekly, Philadelphia City Paper, South Philly Review og Philadelphia Gay News. Philadelphia Magazine er tímarit sem kemur út mánaðarlega.

[breyta] Söfn og áhugaverðir staðir

Listasafn Philadelphiu
Enlarge
Listasafn Philadelphiu
  • 30th Street Station
  • Academy of Natural Sciences
  • Afro-American Historical and Cultural Museum
  • Atwater-Kent Municipal Museum
  • Awbury Arboretum
  • Barnes Foundation
  • Betsy Ross House
  • Boathouse Row
  • Cathedral-Basilica of Sts. Peter and Paul
  • Centennial Arboretum
  • Clark Park Í Vestur Philadelphiu, þar er að finna einu þekktu styttuna af Jonathan Swift í heiminum.
  • Eastern State Penitentiary
  • Edgar Allan Poe National Historic Site
  • Elfreth's Alley
  • Fairmount Park
  • Fairmount Water Works
  • Fort Mifflin
  • Franklin Institute
  • Gloria Dei National Historic Site, elsta kirkjan í fylkinu, byggð árið 1700
  • Kimmel Center for the Performing Arts, aðsetur Philadelphia Orchestra
Independence Hall
Enlarge
Independence Hall
  • Liberty Bell & Independence Hall
  • LOVE Park
  • Mummers Museum
  • Mütter Museum (safn með hvers kyns læknisfræðilegum og meinafræðilegum undrum)
  • National Constitution Center
  • New Alhambra Sports and Entertainment Center
  • One Liberty Place
  • Penn's Landing
  • Philadelphia City Hall
  • Philadelphia Doll Musuem
  • Italian market
  • Philadelphia Museum of Art
  • Philadelphia Zoo
  • Please Touch Museum
  • Reading Terminal Market
  • Rittenhouse Square
  • Rodin Museum (stærsta safn af verkum Auguste Rodin utan Frakklands)
  • Rosenbach Museum & Library
  • SEPTA Museum
  • South Street
  • University of Pennsylvania Museum of Archaeology and Anthropology
  • Wagner Free Institute of Science
  • Walnut Street Theatre, elsta starfandi leikhús í Bandaríkjunum
  • Wanamaker organ, næstsærsta nothæfa orgel veraldar

[breyta] Íþróttir

Íþróttafélag Íþróttagrein Deild Íþróttahöll
Philadelphia Eagles American Football National Football League; NFC Lincoln Financial Field
Philadelphia Phillies Baseball Major League Baseball; NL Citizens Bank Park
Philadelphia 76ers Basketball National Basketball Association Wachovia Center
Philadelphia Flyers Ice Hockey National Hockey League Wachovia Center
Philadelphia Wings Indoor Lacrosse National Lacrosse League Wachovia Center
Philadelphia Barrage Field Lacrosse Major League Lacrosse Villanova Stadium
Philadelphia Soul Arena football Arena Football League Wachovia Center
Philadelphia að næturlagi
Enlarge
Philadelphia að næturlagi

[breyta] Glæpir

Líkt og í mörgum bandarískum borgum jukust glæpir í Philadelphiu jafnt og þétt á árunum eftir síðari heimstyrjöldina. Morðtíðni náði hámarki árið 1990 með 503 morð, með 31,5 morð á 100.000 íbúa. Mestallan tíunda áratug 20. aldar voru framin að meðaltali um 400 morð á ári í borginni. Árið 2002 náði morðtíðni í borginni lágmarki með 288 morð en árið 2005 hafði fjöldi morða aftur náð 380, með 25,85 morð á 100.000 á íbúa.

[breyta] Menntun

[breyta] Almenningsskólar

Skólakerfi borgarinnar heitir School District of Philadelphia og þjónar það öllum hverfum borgarinnar. Í öllum skólum borgarinnar klæðast nemendur skólabúningum.

[breyta] Einkaskólar

Í Philadelphiu eru fjölmargir kaþólskir einkaskólar.

[breyta] Æðri menntun

Háskólar innan borgarmarkanna:

  • The Art Institute of Philadelphia
  • Chestnut Hill College
  • Community College of Philadelphia
  • Curtis Institute of Music
  • Drexel University
  • Holy Family University
  • La Salle University
  • Moore College of Art
  • Peirce College
  • Pennsylvania Academy of the Fine Arts
  • Philadelphia College of Osteopathic Medicine
  • Philadelphia University
  • The Restaurant School
  • Saint Joseph's University
  • Temple University
  • Thomas Jefferson University
  • University of the Arts
  • University of the Sciences in Philadelphia
  • University of Pennsylvania

Háskólar í nágrenni Philadelphiu:

  • Arcadia University (áður Beaver College) í Glenside
  • Bryn Athyn College of the New Church í Bryn Athyn
  • Bryn Mawr College í Bryn Mawr
  • Bucks County Community College með skólasvæði í Newtown og Perkasie
  • Cabrini College í Radnor
  • Delaware County Community College í Marple Township
  • Delaware Valley College í Doylestown
  • Eastern University (áður Eastern College) í St. Davids
  • Gratz College í Melrose Park
  • Haverford College í Haverford
  • Immaculata University í Malvern
  • Lincoln University
  • Manor College í Jenkintown
  • Montgomery County Community College í Blue Bell
  • Neumann College í Aston
  • Pennsylvania State University í Abington, Media og Malvern
  • Rosemont College í Bryn Mawr
  • Swarthmore College í Swarthmore
  • Temple University í Ambler
  • Temple University's Tyler School of Art í Elkins Park
  • Ursinus College í Collegeville
  • Villanova University í Villanova
  • West Chester University of Pennsylvania í West Chester
  • Widener University í Chester

[breyta] Flugvellir

Tveir flugvellir þjóna Philadelphiu, Philadelphia International Airport (PHL) og Northeast Philadelphia Airport (PNE), og eru þeir báðir innan borgarmarkanna (PHL teygir sig út fyrir borgarmörkin). PHL þjónar jafnt innanlandsflugi sem utanlandsflugi en PNE þjónar smærri flugáætlunum einstaklinga og fyrirtækja.

[breyta] Philadelphia í kvikmyndum

  • Rocky (1976)
  • Trading Places (1983)
  • Witness (1985)
  • Mannequin (1987)
  • Philadelphia (1993)
  • 12 Monkeys (1995)
  • The Sixth Sense (1999)
  • Unbreakable (2000)
  • National Treasure (2004)
  • In Her Shoes (2005)

[breyta] Philadelphia í bókmenntum

  • Vísindaskáldsagan Epsilon eftir John J. Rust gerist að mestu leyti í Philadelphiu

[breyta] Heimild

[breyta] Tenglar

Þetta er gæðagrein
Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com