Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Mac OS X - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Mac OS X

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Mac OS X er nýjasta kynslóð Mac OS stýrikerfisins frá Apple Computer, það var sett á á almennan markað árið 2001 en þá var Mac OS X Server þegar í nokkurri notkun.

Mac OS X er annað Unix-lega stýrikerfi Apple. Það fyrsta var A/UX kerfið sem Apple þróaði snemma á tíunda áratugnum til að keyra á netþjónum sem fyrirtækið framleiddi, það átti líka hlut í þróun MkLinux en það kerfi keyrði aldrei á vélum seldum frá fyrirtækinu.

Efnisyfirlit

[breyta] Uppbygging

Apple hefur yfirumsjón með þróun kerfisins, en hlutar þess koma úr fjölmörgum áttum. Meðal annars er allnokkuð notað úr FreeBSD, NetBSD, OpenBSD og GNU kerfinu á Unix-hliðinni en margt er ættað úr NeXTSTEP og svo vitaskuld úr eldri útgáfum Mac OS.

[breyta] XNU

Kjarni OSX, XNU, er blendingskjarni eða breyttur örkjarni byggður á nokkurs konar samsuðu Mach kjarnans frá Carnegie–Mellon háskóla og FreeBSD kjarnans, Mach hlutinn sér meðal annars um verndað minni, sýniminni umsjón með keyrðum forritum ofl. á meðan BSD ættaði hlutinn sér um netkerfið, sýniskráarkerfið ofl.

[breyta] Darwin

Darwin er grunnur Mac OS X og er byggður að mestu leiti á FreeBSD og Mach. Það er gefið út sem frjáls hugbúnaður af Apple Computer. Ýmsir hlutar kerfisins eru fengnir úr öðrum kerfum og þá aðallega BSD-kerfum og GNU. Darwin er hægt að keyra sjálfstætt á fleiri örgjörvum en PPC-örgjörvunum sem Apple notast við í Macintosh-tölvur sínar, eins og t.d. Intel-örgjörvum. Darwin keyrir svo undir örkjarna sem heitir XNU (XNU is not Unix).

[breyta] Aqua

Myndrænt notendaviðmót Mac OS X byggir á Aqua sem aftur byggist á PDF-tækni Adobe. Flestir notendur kerfisins nota nær eingöngu Aqua við sín störf.

[breyta] Hlutar kerfisins

[breyta] Kerfishlutir

  • AppleScript — Skriftumál fyrir stýrikerfið sem byggir á myndrænu notendaumhverfi kerfisins.
  • Dashboard — Kerfishluti sem sýnir ýmiskonar tól byggð á XHTML, CSS og JavaScript sem hægt er að fela og sýna með Exposé-tækninni.
  • Exposé — Með Exposé er hægt að opna glugga og forrit sem eru í gangi á hraðvirkan hátt. Þetta er sérstaklega hentugt þegar mjög margir gluggar eru opnir í einu.
  • Finder — Skráastjóri Mac OS X
  • Kerfisstillingar — Grunnstillingar stýrikerfisins. Svipar til Control Panel í Microsoft Windows.
  • Leturbók — Forrit til að hafa umsjón með leturgerðum.
  • OpenGL — Opinn staðall fyrir stafræna þrívíddartækni og er í flestum öðrum stýrikerfum.
  • QuickTime — Forrit til að spila myndskeið og hljóð. Er einnig til í s.k. Pro-útgáfu sem þarf að borga fyrir, auk Windows-útgáfu.
  • Spotlight — Notað til að leita að texta í skrám og annars staðar í kerfinu.
  • X11 — Í Mac OS X er hægt að keyra grafísk forrit sem byggð eru á X11 með Aqua-kerfinu.

[breyta] Notendaforrit

  • Chess — Skákleikur. Grafískt notendaviðmót fyrir GNU Chess.
  • DVD Player — DVD-spilari.
  • Forsýn — Myndrýniforrit með nokkrum myndvinnslumöguleikum. Það styður flestar gerðir mynda auk PDF-skjala, svo eitthvað sé nefnt.
  • iChat — Spjallforrit sem notast við AOL og Jabber-tækni.
  • Image Capture — Forrit til að ná ljósmyndum og myndskeiðum af stafrænum myndavélum.
  • iSync — Forrit til að samstilla póstfangaskrá og iChat svo eitthvað sé nefnt við farsíma og lófatölvur.
  • iTunes — Tónlistarspilari með innbyggðri netverslun til að versla tónlist. Styður m.a. MP3 og AAC.
  • Mail — Póstforrit
  • Póstfangaskrá — Heldur utan um heimilisföng og upplýsingar um einstaklinga og fyrirtæki.
  • Safari — Vefskoðari sem byggir á KHTML-vél KDE-hópsins.
  • TextEdit — Lítill textaritill ætlaður fyrir grundvallarvinnslu á texta.

[breyta] Íslenskt mál í Mac OS X

Enlarge

Snemma kom í ljós að stuðningur Mac OS X við íslenskt mál var ekki eins og best var á kosið og var það rakið til þess að með tilkomu Mac OS X var farið að nota 8 bita Unicode stafatöflu í stað MacRoman og MacIcelandic stafataflanna sem höfðu verið ríkjandi áður. Þetta olli þeim sem nota íslenskan texta í ýmsum hugbúnaði sem studdi ekki enn Unicode en keyrði þó á Mac OS X nokkrum vandræðum en áður höfðu þeir sem notuðu íslenskt mál á fyrri kerfum þurft að snurfusa kerfið til á ýmsan hátt til að gera sér auðvelt fyrir.

[breyta] Íslenskustuðningur

Öflun ehf. (Apple IMC á Íslandi) brást við þessum vandamálum með því að gefa út viðbót sem látin var fylgja með og var kölluð íslenskustuðningur og lagaði hluta þeirra vandamála sem höfðu skapast vegna skiptingarinnar yfir í nýja stafatöflu. Með útgáfu 10.4 hefur þetta vandamál verið lagað að stórum hluta.

[breyta] Íslensk þýðing

Á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember 2004 eftir að uppfærsla í útgáfu 10.3.8 var gefin út gaf Öflun ehf. út íslenska þýðingu á ýmsum hlutum kerfisins; Finder, Mail, Kerfisstillingum og iChat, en þýðingin fylgdi með íslenskustuðningnum.

[breyta] Nafnsifjar

Bókstafurinn X í nafninu stendur fyrir töluna 10 í rómverska talnakerfinu og því er er stýrikerfið oft nefnt annað hvort Mac OS ex eða Mac OS tíu en það er oft kallað tían í daglegu tali.

[breyta] Þróunartré Mac OS X

[breyta] Tengt efni

  • Mac OS
  • A/UX
  • MkLinux

[breyta] Tenglar

Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com