Dagur íslenskrar tungu
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dagur íslenskrar tungu er dagur, 16. nóvember, tileinkaður íslensku.
Haustið 1995 lagði menntamálaráðherra til að einn dagur ár hvert yrði tileinkaður íslensku og átak gert í varðveislu hennar. Fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar var valinn til minningar um framlag hans til íslenskunnar.
Fyrsti dagur íslenskrar tungu var 16. nóvember 1996 og hefur verið haldinn síðan árlega.