Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Haförn - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Haförn

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Haförn
Í útrýmingarhættu
Fullorðinn haförn á flugi
Fullorðinn haförn á flugi
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríki (Animalia)
Fylking: Seildýr (Chordata)
Flokkur: Fuglar (Aves)
Ættbálkur: Fálkungar (Falconiformes)
Ætt: Haukaætt (Accipitridae)
Ættkvísl: Haliaeetus
Tegund: H. albicilla
Fræðiheiti
Haliaeetus albicilla
(Linnaeus, 1758)
Útbreisla hafarna: Ljósgrænn: Varpsvæði; Blár: Veturseta; Dökkgrænn: Staðfugl
Útbreisla hafarna: Ljósgrænn: Varpsvæði; Blár: Veturseta; Dökkgrænn: Staðfugl

Haförn (fræðiheiti: Haliaeetus albicilla), einnig þekktur sem örn eða assa er mjög stórvaxinn ránfugl af haukaætt.

Haförn verpir í norðurhluta Evrópu og Asíu. Haförnum var næstum útrýmt í Evrópu en með friðun og aðgerðum hefur tekist að endurreisa varp sums staðar. Hafernir eru alls staðar sjaldgjæfir en ernir eru þó flestir við strendur Noregs. Hafernir eru oftast staðfuglar.

Haförn er um 70-90 sm langur og vænghaf hans er 200 -240 sm. Fuglinn vegur um 5 kg. Kvenfuglar eru mun minni en karlfuglar. Haförninn hefur breiða ferhyrnda vængi og stórt höfuð. Fullorðinn örn er brúnn en höfuð og háls er ljósara, stélið er hvítt og goggur og fætur gulir. Á ungum fuglum er stél og goggur dökkt og stélið verður hvítt með svartri rönd þegar fuglinn eldist. Ernir verða kynþroska 4 til 5 ára gamlir. Ernir parast fyrir lífstíð og þegar annar fuglinn fellur frá þá getur tekið hinn mörg ár að finna nýjan maka. Ernir gera sér stundum hreiður í hrúgu af kvistum í tré eða á klettasyllum. Hreiður íslenskra arna er stundum mikill birkilaupur en eru oftar hrúga eða dyngja úr þangi, hvanndrjólum og grasi. Hreiðurgerðin er viðaminni ef ernirnir hafa hreiðrað um sig í sjávarhólmum. Sömu hreiðrin eru oftast notuð ár eftir ár. Ernir verpa einu til þremur eggjum og líða nokkrir dagar á milli eggjanna. Ernir fara að liggja á þegar einu eggi er orpið og álegutíminn er 35 dagar. Ungarnir verða fleygir um 10 vikna gamlir. Foreldrarnir þurfa að mata ungana fyrstu 5-6 vikurnar en eftir það rífa þeir sjálfir í sig bráðina. Algengast er að aðeins einn ungi komist upp í arnarhreiðri, tveir ungar komast upp í þriðja hverju hreiðri.

[breyta] Íslenski arnarstofninn

Arnarstofninn á Íslandi telur 65 fullorðin pör (2005) og hefur rúmlega þrefaldast frá því að bannað var að eitra fyrir tófu árið 1964. Það komust á legg 35 arnarungar árið 2005 og er það fleiri en nokkru sinni síðan farið var að fylgjast með arnarvarpi árið 1959. Aðalheimkynni arnarins eru við Breiðafjörð en þar halda nú til rúmlega 40 pör eða 2/3 hlutar stofnsins. Hafernir verptu fyrr á öldum yfirleitt á óaðgengilegum stöðum, í ókleifum klettum eða hólmum í ám og vötnum. Sennilegt er að ernir kjósi að verpa á láglendi en hafi hrakist upp í hamra vegna ofsókna manna. Þegar ernir voru friðaðir og búseta í eyjum og nytjar af eyjum minnka um miðja 20. öld þá fluttu ernir heimkynni sín að mestu leyti úr hömrum í landi út í tanga og hólma.

[breyta] Heimildir

Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com