Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Sálgreining - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Sálgreining

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

ATH
Deilt er um hlutleysi þessarar greinar. Ástæðan er: Hér þarf að koma fram gagnrýni á kenningar Freuds, þar sem mjög fáir sálfræðingar taka nokkurt mark á þeim.

Sálgreining (þýska: psychoanalyse) er sálfræðistefna sem byggist á verkum Sigmund Freud frá um 1900, en megininntak stefnunnar er að allt alferli manna stjórnist af öflum sem eru þeim ómeðvituð og nefndi Freud þau dulvitund og hvatir. Þessi stefna hefur haft gífurleg áhrif innan sálfræðinnar, en einnig á bókmenntir.

Sálgreining er mjög umdeild innan sálfræði[1], og fáir innan geðheilbrigðisstéttarinnar nota sálgreiningu eins og Freud gerði, en nútíma sálgreining er notuð af mörgum innan hennar.[2] Miklar deilur eru innan sem utan sálgreiningar-samfélagsins um hvort sálgreining sé vísindi, gervivísindi eða eitthvað allt annað.

Efnisyfirlit

[breyta] Upphaf

Freud setti fyrstur fram kenningar um sálgreiningu, en uppruna þeirra má rekja til dvalar hans í París á árunum 1885-1886 hjá franska taugalækninum Jean Martin Charcot. Þar kynntist Freud sefasjúklingum, sefasýki, og dáleiðslu sem meðferðaraðferð. Freud hélt aftur til Vínar og opnaði þar sína eigin læknastofu, enda áttu hugmyndir hans ekki upp á pallborðið hjá öllum. Þar ásamt samstarfsmönnum sínum, m.a. Josef Breuer og Wilhelm Fliess, beitti hann meðferð sinni og vinnubrögðum óáreittur og meðhöndlaði m.a. sefasjúka.

Sefasýki er afbrigði taugaveiklunar sem lýsir sér á líkamlegan hátt án þess að orsökin finnist. Sjúklingur getur blindast, misst heyrn og lamast. Við þessu lærði Freud að beita dáleiðslu til lækningar á þessum sjúkdómi. Sjúklingnum var komið í dásvefn og var honum sagt að hann yrði aftur heilbrigður þegar hann yrði vakinn. Í raun mátti rekja taugaveiklun til einhverra sálrænna áfalla sem einstaklingur hafði orðið fyrir, oftast í bernsku.

Í fyrstu notaði Freud dáleiðslu í meðferð sinni en fór seinna meir að telja að samtalsmeðferð gæti skilað jafngóðum árangri. Samtalsmeðferðarformið sem hann notaði nefnist frjáls hugrenningaraðferð. Meðferðin fór þannig fram að hann lét fólkið leggjast á bekk og lét það tala um allt sem þeim datt í hug. Þetta hafði þær afleiðingar, að mati Freuds, að fólk hreinsaði huga sinn af því sem kom fram, eða var á samvisku fólks, og mætti líkja því við „skorsteinshreinsun“ eins og einn sjúklinga Freuds orðaði það.

[breyta] Sálgreining Freuds

Sálgreining Freuds er í rauninni heiti á persónuleikakenningu Freud, en jafnframt líka meðferðarforminu sem hann beitti á sjúklinga/skjólstæðinga sína. Þaðið, sjálfið og yfirsjálfið eru grundvallarhugtök þessari kenningu Freuds.

Samkvæmt kenningu Freud er þaðið aðsetur grunnhvata, sérstaklega kynhvatarinnar, og stjórnast af svokölluðu vellíðunarlögmáli. Vellíðunarlögmálinu er framfylgt þegar hvötunum er sinnt. Yfirsjálfið er "siðgæðisvörður" persónuleikans. Milli þaðsins og yfirsjálfsins er eilíf togstreyta. Sem dæmi má nefna það að hvötin til að stunda kynlíf er alltaf í (dulvituðum) huga manna en það gengur gegn siðferðislegum gildum samfélagsins að fólk fái útrás kynhvatar sinnar hvar og hvenær sem er. Sjálfið er síðan nokkurs konar miðstöð persónuleikans, eða meðvitund, og stjórnast af raunveruleikalögmálinu, sem í munni Freuds er nokkurn veginn jafngildi rökrænnar hugsunar. Sjálfið reynir að fá útrás hvata þaðsins en á þann hátt sem þóknast yfirsjálfinu.

Sálgreining Freuds er dæmi um hreinræktaða löghyggju. Orsakalögmál Freud byggjast þó á því að hegðun okkar og skapgerð sé stjórnað af ómeðvituðum öflum í dulvitundinni. Þetta þýðir að öll okkar breytni á sér orsakir, og líka það sem við teljum einskæra tilviljun, s.s. að mismæla okkur, gleyma stefnumóti, lagi sem við fáum á heilann, vanræksla, gleymska o.s.frv. Dulvitund er, eins og orðið gefur til kynna, eitthvað sem við vitum ekki um, og er því erfitt að henda reiður á. Engu að síður er margt sem bendir til þess að hún sé til. Kenning Freud reynir að útskýra þessar duldu hvatir.

Samkvæmt kenningunni, stjórna hvatir dulvitundinni, en í upphafi nefndi Freud þessar hvatir (hvatir) libido og voru þær í eðli sínu kynferðislegar. Hvatakenningin breyttist síðan þannig að Freud gerði ráð fyrir tveimur andstæðum öflum: Dauðahvöt og lífshvöt. Lífhvötin birtist helst í kynhvöt, en dauðahvöt í árásargirnd t.a.m. í stríði og og ófriði milli manna. Þessu mætti einna helst líkja við hina eilífu togstreitu milli góðs og ills, enda skýrar samsvaranir þar á milli. Inn í þessa hvatakenningu spinnst Darwinismi og einnig svokallað vellíðunarlögmál. Útrás hvatana eru dýrslegar leifar frá uppruna okkar (Darwinsismi) en jafnframt markmið vellíðunarlögmálsins.

Hvatir mannsins fylgja honum allt frá fæðingu, og m.a.s. á bernskuskeiði telur Freud að kynhvöt sé vöknuð. Þá skiptir hann kynhvöt barna í mismunandi stig s.s. munn og kynfærastig, en útfrá þessari hugmynd um kynhvöt barna kom Ödipusarduldin til sögunnar, en hún segir að á ákveðnum aldri laðist drengir kynferðislega að mæðrum sínum. Drengir þróa þá með sér óttablandna virðingu fyrir feðrum sínum, vegna hræðslu við afbrýðissemi föðursins. Þetta kallast vönunarótti, því drengir hræðast að verða geldir af föður sínum skyldi hann komast að hrifningu sonar síns á konu sinni. Þetta gæti einnig verið dulin ástæða þess að drengir líta oft upp til feðra sinna og reyna að líkjast þeim á ákveðnum skeiðum. Álíka duld er hjá stelpum, nema með öfugum formerkjum. Nefnist það Elektruduld.

Þessar hvatir birtast í persónuleikalíkani Freuds þar sem hann telur persónuleikann þrískiptan: Sjálfið, yfirsjálfið og það. Sjálfið er miðstöð ákvarðana og eins konar sáttasemjari milli þess og yfirsjálfsins. Það er hið dýrslega í okkur og á í eilífri baráttu við yfirsjálfið sem geymir hinu samfélagslegu boð og bönn, hvað sé réttast að gera og hvað sé rangt. Hafi yfirsjálfið alltaf yfirhöndina, og aldrei er fengin útrás fyrir því sem menn vilja samkvæmt því þá getur það birst í taugaveiklun eða öðrum geð/sálrænum kvillum. Það er því ekki alltaf endilega rétt það sem yfirsjálfið segir sjálfinu að gera, og verður mannskepnan einhvern tímann að fá útrás hvata sinna.

[breyta] Gagnrýni

Mikið hefur verið rætt og skrifað um kenningar Sigmund Freud og eru enn miklar deilur varðandi fræði hans. Þetta stafar aðallega af því að ekki er hægt að heimfæra neitt af því sem hann setur fram á strangvísindalegan hátt. Þetta er nokkuð sem hefur veikt kenningar Freud í sessi og eru margir sem líta á þær sem hverja aðra vitleysu. Engu að síður er hægt að heimfæra mikið af því sem Freud skrifar yfir í raunveruleikann og hafa meðferðarúrræði hans reynst notadrjúg í gegnum tíðina.

Sumir gagnrýnendur, líkt og Juliet Mitchell, hafa stungið upp á að grunnhugmynd Freuds - það að meðvitaðar hugsanir okkar og aðgerðir séu drifnar áfram af ómeðvituðum hugsunum og hræðslu - skuli hafnað vegna þess að hún óbeint segir að við getum tæplega sett fram alhliða né hlutlægar kenningar um heiminn. Þeir sem styðja vísindin segja að þessi rök geri kenningu Freuds að engu í því að skilja og útskýra mannlega hegðun.

Freud hefur líka verið gagnrýndur af feministum; sumir þeirra segja að, að kenningar Freuds um kynferðislegan þroska kvenna, hafi í það mesta, hægt á þróun kvenréttinda í vestrænum ríkjum um áratugi, en í það minnsta hafi kenningarnar verið fjandsamlegar konum.

Karl Popper heldur því fram að kenning Freuds um dulvitundina sé ekki hægt að rengja, og þar með sé hún ekki vísindaleg. Hann hins vegar mótmælti þeirri hugmynd ekki að öllu leyti að það séu ferlar í huga okkar sem við ekki vitum af - en aftur á móti var hann aðallega að setja út á rannsóknaraðferðir Freuds.

Dr. J. Von. Schneidt var fyrstur til að koma fram með þá hugmynd að kenningar Freuds væru runnar undan rifjum kókaínneyslu Freuds, en kókaínneysla ýtir undir kynferðislegan áhuga og þráhyggjuhugsun. Það er þekkt að kókaínnotkun getur leitt til þráhyggjulegrar hugsunar, og hún gæti hafa verið áhrifavaldur í ofuráherslu Freuds á kynhvötina í kenningum hans.

[breyta] Nútíma sálgreining

[breyta] Gagnrýni

[breyta] Heimildir

Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com