Dulvitund
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dulvitund eru hugsanir, viðhorf, hvatir, óskir og tilfinningar sem við höfum ekki beinan og greiðan aðgang að. Allt saman stjórnast þetta af einhverju ómeðvituðu. Ýmsir fræðimenn hafa fjallað um hugtakið á undan Sigmund Fraud en hann lagði þó mesta áherslu á það. Hann taldi að í dulvitundinni, eða undirmeðvitundinni lægi rót alls vanda falin. Snúast því kenningar hans flestar um þennan mikilvægasta hluta sálarlífsins (að hans mati) með einum eða öðrum hætti. Hann hélt því fram að allt sem okkur þætti óþægilegt að hugsa um væri ýtt til hliðar í en þar héldi það samt sem áður áfram að hafa áhrif á hegðun okkar og líðan er þær reyna að brjóta sér leið út úr dulvitundinni en birtingarform koma í draumförum, mismælum, kjækjum og fleiru.