Otto von Bismarck
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
![Otto von Bismarck á vinnustofu sinni 1886.](../../../upload/shared/thumb/5/50/BismarckArbeitszimmer1886.jpg/180px-BismarckArbeitszimmer1886.jpg)
Otto von Bismarck á vinnustofu sinni 1886.
Otto Eduard Leopold von Bismarck-Schönhausen fursti og hertogi af Lauenburg (1. apríl 1815 – 30. júlí 1898) var einn framstæðasti aðals– og stjórnmálamaður Evrópu á 19. öld. Hann var forsætisráðherra Prússlands á árunum 1862–1890 og skipulagði sameiningu Þýskalands (1871). Hann var kanslari Norður–Þýska ríkjabandalagsins frá 1867 og svo kanslari sameinaðs Þýskalands til 1890. Hann var kallaður „járnkanslarinn“ sem var tilvísun í fræga ræðu sem hann hélt um sameiningu Þýskalands, en það var hans skoðun að það yrði sameinað með „með járni og blóði“ en ekki umræðum og kosningum á þingi.