Latneskar bókmenntir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Latneskar bókmenntir eru bókmenntir Rómverja skrifaðar á latínu. Tímabilum latneskra bókmennta er yfirleitt skipt í "gullaldarlatínu" , eða Gullöld latneskra bókmennta, sem dekkar nokkurn veginn tímann frá upphafi fyrstu aldar f.Kr. út miðja fyrstu öld okkar tímatals, og silfuraldarlatínu, sem dekkar það sem eftir er klassíska tímans eða út aðra öld okkar tímatals. Eftir það er talað um síðlatínu, þ.e.a.s. latínu síðfornaldar, og er hún einkum rannsökuð til að varpa ljósi á þróun rómönsku málanna úr latínu. Á þessu eru þó undantekningar, svo sem Ágústínus frá Hippó.) Eftir Ágústínus og Boethíus er talað um miðaldalatínu (en þeir Ágústínus og Boethíus eru ýmist taldir síðustu fornmennirnir eða fyrstu miðaldamennirnir í þessu samhengi). Miðaldalatínan nær til endurreisnartímans en latína eftir endurreisnartímann nefnist nýlatína. Kirkjulatína var fyrirferðamikil á miðöldum en er strangt tekið ekki flokkuð eftir tímabili heldur mun fremur eftir viðfangsefni og höfundum.
Efnisyfirlit |
[breyta] Helstu höfundar
Hér að neðan getur að líta yfirlit yfir helstu höfunda eftir tímabilum og bókmenntagreinum. Helstu verk eru gefin til kynna þar sem við á.
[breyta] Snemmlatneskar bókmenntir
Kveðskapur
Gamanleikir
- Plátus
- Terentíus
[breyta] Gullöld latneskra bókmennta
Aðalgrein: Gullaldarlatína
Kveðskapur
- Lúcretíus : Um eðli hlutanna (De Rerum Natura)
- Catullus
- Virgill : Eneasarkviða
- Hóratíus
- Óvidíus : Myndbreytingar
- Tíbúllus
- Propertíus
Óbundið mál
- Marcus Túllíus Cíceró : Um ræðumanninn, Brútus, Ræðumaðurinn, Um ellina, Um vináttuna, Samræður í Túscúlum, Um endimörk góðs og ills, Um skyldur, Gegn Catilínu (4 ræður), Filippísku ræðurnar o.m.fl.
Sagnaritun
- Júlíus Caesar : Gallastríðin
- Nepos
- Sallústíus
- Lívíus : Frá stofnun borgarinnar (Ab Urbe Condita)
[breyta] Silfuraldarlatína
Aðalgrein: Silfuraldarlatína
Kveðskapur
- Manilíus
- Lúcanus
- Persíus
- Statíus
Óbundið mál
- Seneca yngri : Um stuttleika lífsins, Um hið ljúfa líf, Um reiðina, Um sálarró; einnig Medea (leikrit)
- Petróníus : Satýricon
- Pliníus eldri : Náttúrufræðin
- Quintilíanus : Um menntun ræðumannsins
- Pliníus yngri
- Álus Gellíus : Attíkunætur
- Apúleius : Gullasninn
- Asconíus
Satírur
- Júvenalis
- Martíalis
Sagnaritun
- Tacítus : Annálarnir, Germanía, Agrícola
- Súetoníus : Ævisögur keisaranna
[breyta] Latneskar bókmenntir í síðfornöld
- Ammíanus Marcellínus
- Ágústínus frá Hippó : Játningar, Um borgríki guðs
- Ásoníus
- Boethíus : Hugfró heimspekinnar
- Cládíanus
- Evtrópíus
- Ambrósíus Theodósíus Macrobíus
- Pálínus frá Nóla
- Sidoníus Apollinaris
- Sulpicíus Severus
[breyta] Miðaldalatína og kirkjulatína
- Pierre Abélard
- Aetheria
- Albertus Magnus
- Heilagur Tómas frá Aquinó : Um lög
- Bede
- Carmina Burana
- Geoffrey frá Monmouth
- Gildas
- Gregoríus frá Tours
- Heilagur Ísidór frá Sevilla : Orðsifjar
- Heilagur Hýerónýmus : Vúlgatan
- Pétur frá Blois
- Petrarcha
- Tómas frá Celaeno : Dagur reiðinnar
- Venantíus Fortúnatus
- Walter of Châtillon
[breyta] Nýaldarlatína
- Erasmus frá Rotterdam : Lof heimskunnar
[breyta] Tengt efni
[breyta] Ítarefni
- Braund, Susanna Mortin, Latin Literature (London: Routledge, 2002).
- Conte, Gian Biagio, Latin Literature: A History. Joseph B. Solodow (þýð.) (Baltimore: Johns Hopkins University Press, 1994).