Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Eignarfall - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Eignarfall

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Eignarfall er fall sem fallorð geta staðið í. Ýmsar forsetningar stýra eignarfalli og í sumum málum stýra ýmsar sagnir eignarfalli. Einnig getur eignarfallið staðið með öðru fallorði og gefið til kynna ákveðin tengsl þess, sem orðið í eignarfalli stendur fyrir, og þess, sem stýrandi orð stendur fyrir.

Eignarfall getur m.a. gefið til kynna:

  • uppruna („menn Rómar“, þ.e. menn frá Róm)
  • einkenni („maður margra orða“)
  • stærð („tveggja metra langur“)
  • heild sem stýrandi orð er hluti af („helmingur þjóðarinnar“)
  • eign („bók Halldórs“)
  • geranda sagnarmerkingar stýrandi orðs („dómur Jóns“, þ.e. Jón dæmir)
  • andlag sagnarmerkingar stýrandi orðs („sýknun Guðmundar“, þ.e. Guðmundur var sýknaður)
  • tíma („kvölds og morgna“)

Mörg tungumál hafa eingnarfall, þeirra á meðal: arabíska, finnska, georgíska, gríska, hollenska, írska, íslenska, latína, litháíska, rússneska, sanskrít, og þýska.

[breyta] Eignarfall í forngrísku

Eignarfall í forngrísku getur m.a. verið notað á eftirfarandi hátt:

  • Genitivus subiectivus: Eignarfall gerandans; gefur til kynna geranda sagnarmerkingar stýrandi orðs.
  • Genitivus obiectivus: Andlagseignarfall; gefur til kynna andlag sagnarmerkingar stýrandi orðs.
  • Genitivus possessivus: Eiginlegt eignarfall; gefur til kynna eiganda.
  • Genitivus partitivus: Eignarfall heildarinnar; gefur til kynna heildina sem stýrandi orð er hluti af.
  • Genitivus descriptivus: Eignarfall lýsingarinnar; lýsir nánar stýrandi orði.
  • Genitivus qualitatis: Eignarfall einkennis; gefur til kynna eiginleika sem stýrandi orð hefur.
  • Genitivus definitivus: Eignarfall skilgreiningarinnar; getur staðið með stýrandi orði til að skilgreina nánar.
  • Genitivus pretii: Eignarfall verðleikans; gefur til kynna hvers virði eitthvað er.
  • Genitivus temporis: Tímaeignarfall; gefur til kynna innan hvaða tíma eitthvað á sér stað.
  • Genitivus separativus: Eignarfall aðskilnaðarins; gefur til kynna aðskilnað einkum með sögnum sem merkja að hætta, sleppa, mistakast, skorta, þarfnast og vera fjarri.
  • Genitivus comparativus: Eingarfall samanburðarins. Gefur til kynna eitthvað sem eitthvað annað er borið saman við.
  • Genitivus causae: Eignarfall orsakarinnar; gefur til kynna orsök einhvers.
  • Genitivus absolutus: Sjálfstætt eignarfall; nafnorð og lýsingarorð eða lýsingarháttur geta staðið í eingarfalli, málfræðilega ótengt restinni af setningunni og gefið til kynna tíma, skilyrði, orsök, eða viðurkenningu.

[breyta] Eignarfall í íslensku

Föll í íslensku
Nefnifall
Þolfall
Þágufall
Eignarfall

Eignarfall er eitt af fjórum föllum í íslensku. Auk þess að vera notað með forsetningum, eins og „til“, og með örfáum sögnum, eins og „sakna“, getur aukafallsliður í eignarfalli verið notaður á eftirfarandi hátt í íslensku:

  • Eiginlegt eignarfall: Gefur til kynna eiganda. Dæmi: „Þetta er bók Guðmundar“.
  • Eignarfall heildarinnar: Gefur til kynna heildina sem stýrandi orð er hluti af. Dæmi: „Margir þingmannanna“.
  • Tímaeignarfall: Gefur til kynna hvenær eitthvað gerist. Dæmi: „Drengurinn les ljóð kvölds og morgna“.

[breyta] Eignarfall í latínu

  • Genitivus subiectivus: Eignarfall gerandans; gefur til kynna geranda sagnarmerkingar stýrandi orðs. Dæmi Amor dei („ást guðs“, þ.e. það er guð sem elskar).
  • Genitivus obiectivus: Andlagseignarfall; gefur til kynna andlag sagnarmerkingar stýrandi orðs. Dæmi: Amor dei (orðrétt: „ást guðs“, þ.e. „guðsást“; þ.e.a.s. það er guð sem er elskaður).
  • Genitivus possessivus: Eiginlegt eignarfall; gefur til kynna eiganda. Dæmi: Domus Caesaris („hús Caesars“).
  • Genitivus partitivus: Eignarfall heildarinnar; gefur til kynna heildina sem stýrandi orð er hluti af. Dæmi Multi Romanorum („margir Rómverjanna“).
  • Genitivus originis: Eignarfall upprunans; gefur til kynna uppruna einhvers. Dæmi: Marci filius („sonur Marcusar“).
  • Genitivus descriptivus: Eignarfall lýsingarinnar; lýsir nánar stýrandi orði. Dæmi: Femina magnae prudentiae („kona mikillar skynsemi“).
  • Genitivus qualitatis: Eignarfall einkennis; gefur til kynna eiginleika sem stýrandi orð hefur. Dæmi talentum auri („talenta úr gulli“).
  • Genitivus definitivus: Eignarfall skilgreiningarinnar; getur staðið með stýrandi orði til að skilgreina nánar. Dæmi: Ars scribendi („listin að skrifa“).
  • Genitivus pretii: Eignarfall verðleikans; gefur til kynna hvers virði eitthvað er. Dæmi: Oratio nullius momenti („Ræða einskis virði“).
Wiktionary merkið
Orðabókaskilgreiningu fyrir Eignarfall er að finna í Wikiorðabókinni.

Þessi grein er stubbur sem ekki hefur verið settur í undirflokk.
  Þú getur hjálpað til með því að bæta við hana, eða með því að flokka hana betur.  

Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com