Eiði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eiði er mjó landræma sem tengir tvo stærri landmassa, eiði er andhverfa sunds.
Eiði eru góður staður til að byggja skipaskurði og liggja margir þekktir skipaskurðir í gegnum eiði, þar á meðal Panamaskurðurinn sem tengir Atlantshafið og Kyrrahafið gegnum Panamaeiðið og Súesskurðurinn sem tengir Miðjarðarhafið og Rauðahafið gegnum Súeseiðið.