Berlínarmúrinn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Berlínarmúrinn (þýska: Die Berliner Mauer) var mannvirki sem skildi að Vestur-Berlín og Austur-Þýskaland. Hann var byggður árið 1961 og féll 9. nóvember 1989. Yfirvöld Austur-Þýskalands kölluðu hann andfasistavarnarmúr (þýska: antifaschistischer Schutzwall).