Tony Blair (hljómsveit)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Tony Blair er íslensk pönkhljómsveit stofnuð vorið 2004 af fimm félögum í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði og er nefnd í höfuðið á forsætisráðherra Bretlands Tony Blair.
Sveitin samanstóð í upphafi af Degi Snæ Sævarssyni, sem lék á gítar og söng, Guðmundi Björnssyni á trommur, Hilmari (Himma) Hilmarssyni á rythmagítar, Katrínu Jakobsdóttur sem bakrödd og Páli Hilmarssyn á bassa. Þegar hljómsveitin átti að byrja að spila mun Dagur ekki hafa átt pening fyrir húsnæðinu og mun þá hafa verið rekinn úr sveitinni. Katrín var einnig látin fara, en af öðrum ástæðum.
Eftir þessar breytingar var Stefán Pálsson gerður að söngvara og Haraldur (Halli) Þorleifsson fenginn á gítar. Ekki leið þó langur tími þar til Stefán var rekinn, Palli fór aftur fyrir hljóðnemann og Halli á bassann og er uppstillingin þannig enn þann dag í dag.
Þekktasta lagasmíð hljómsveitarinnar er þjóðfélagsádeilan „Það er alltaf hlýtt á Hlemmi“. Minna þekkt lög eru m.a. „Meira paunk“ og „Cherie Blair“. Fyrsta plata hljómsveitarinnar kom út síðla árs 2004 og heitir „Skuðið í tussunni“. Platan inniheldur upptökur frá einum af fjölmörgum tónleikum sveitarinnar á Grand Rokk og er þar meðal annars að finna ofangreind lög.
Hljómsveitin kýs að kalla sig paunkhljómsveit.
[breyta] Meðlimir
- Páll Hilmarsson (söngur)
- Hilmar Hilmarsson (gítar)
- Haraldur Ingi Þorleifsson (bassi)
- Guðmundur Björnsson (trommur)