Stefán Pálsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stefán Pálsson (fæddur 1975) er af mörgum talinn einn helsti Gettu betur sérfræðingur Íslands og gegndi stöðu dómara í keppninni árin 2004 og 2005. Hann var á tímabili söngvari í pönk-hljómsveitinni Tony Blair. Stefán er sagnfræðingur að mennt og heldur úti bloggsíðu. Hann er einnig þekktur sem dyggur aðdáandi breska knattspyrnuliðsins Luton Town. Stefán leikur sjálfur í framlínu áhugamannaliðsins Sheffield Tuesday og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir markheppni og seiglu, enda hefur honum gjarnan verið lýst sem blöndu af Jan Mölby og Romario.
Stefán sigraði í Gettu betur ásamt félögum sínum í liði Menntaskólans í Reykjavík árið 1995 með frægu lokasvari sem tryggði liði hans sigurinn. Hann var líka sigursæll á menntaskólaárum sínum í MORFÍS. Eftir að hann lauk námi og fram eftir þrítugsaldri kom hann að þjálfun bæði Gettu betur- og Morfís-liða ýmissa framhaldsskóla.
Stefán var einn stofnenda MÚR, Málfundafélags úngra róttæklinga, árið 1999, sem heldur úti vefritinu Múrinn.is.
Stefán var um árabil virkur í Alþýðubandalaginu og síðar í Vinstri grænum. Hann hefur verið virkur innan Samtaka herstöðvaandstæðinga, m.a. sem formaður. Sem slíkur hefur Stefán verið eftirsóttur stjórnmálaskýrandi á stundum.