Kyn (málfræði)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Til að sjá greinina um kyn hjá dýrum er hægt að skoða kyn.
Kyn í íslenskri málfræði eru þrjú: kvenkyn, karlkyn og hvorugkyn. Sum tungumál eins og danska hafa aðeins samkyn og hvorugkyn, þar sem samkynið er staðgengill fyrir karl- og kvennkyn. Önnur tungumál hafa ekkert málfræðilegt kyn.
Efnisyfirlit |
[breyta] Kyn í íslensku
[breyta] Kvenkyn
Kvenkynið (oft stytt í kvk.) í íslensku er hægt að finna með því að sjá hvort það passi að segja persónufornafnið „hún“ fyrir framan, dæmi:
„Stelpa“. Hún stelpan.
„Stelpa“ er þá í kvennkyni.
[breyta] Karlkyn
Karlkynið (oft stytt í kk.) í íslensku er hægt að finna með því að sjá hvort það passi að segja persónufornafnið „hann“ fyrir framan, dæmi:
„Bolti“. Hann boltinn.
„Bolti“ er þá karlkyns orð.
[breyta] Hvorugkyn
Hvorugkynið (oft stytt í hk. eða hvk.) í íslensku er hægt að finna með því að sjá hvort það passi að segja persónufornafnið „það“ fyrir framan, dæmi:
„Lýsi“. Það lýsið.
„Lýsi“ er þá hvorugkyns orð.
En vegna þess að þessi aðferð byggist á því að góð þekking í íslensku sé til staðar, geta útlendingar eða þeir sem að hafa ekki góðan skilning á íslensku ekki notað hana. Í stað ætti að læra kyn hvers nafnorðs utan að. Kyn sumra orða eru rökrétt, svo dæmi sé tekið:
„Kona“ (kvk.) „Maður“ (kk.) „Barn“ (hk.) „Stelpa“ (kvk.)
En kyn flestra orða er órökrétt:
„Hestur“ (kk.) „Hrísgrjón“ (hk.) „Ljón“ (hk.) „Api“ (kk.) „Geimflaug“ (kvk.)
Þannig að ekki er hægt að "álykta" kyn einhvers orðs.
[breyta] Samsett orð
Ef orð er samsett, tekur orðið kyn síðasta orðsins:
Karl (kk.) + kyn (hk.) = Karlkyn (hk.) Tölva (kvk.) + leikur (kk.) = Tölvuleikur (kk.)
[breyta] Kyn í latínu
[breyta] Kvenkyn
Fyrsta fallbeygingin í latínu (sem endar á -a) inniheldur aðallega kvenkyns orð (eins og puella (stelpa), femina (kona) og domina (frú)) en þó eru nokkur orð sem eru í karlkyni (nauta (sjómaður), agricola (bóndi)). Þessi orð fallbeygjast oftast með -ae eða -æ, svo dæmi séu tekin; „puellae“ (stelpur), „feminae“ (konur), „dominae“ (frúr), „nautae“ (sjómenn) og „agricolae“ (bóndar).
[breyta] Karlkyn
Önnur fallbeygingin í latínu (sem endar á -us og -um) hefur bæði karlkyns- og hvorugkynsorð. Orðin sem enda á -us eru oftast karlkyns eins og dominus (herra), agellus (lítið landsvæði) og cunarius (karlkyns barnfóstra) (og enda þau á -i í fleirtölu; Domini, agelli og cunarii). Nokkur karlkyns orð í annarri fallbeygingu enda hinsvegar ekki á -us í nefnifalli eintölu en beygjast samt eins og karlkyns orð í annarri fallbeygingu, eins og puer (strákur) sem er pueri í fleirtölu nefnifalli. Nokkur orð í annarri beygingu sem enda á -us er kvenkyns, einkum heiti borga og landa, trjáa og svo orðið humus (jörð). Orðin vulgus (almenningur), virus (eitur) og pelagus (haf) eru hvorugkyns.