Joseph Brodsky
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Joseph Brodsky (24. maí 1940 - 28. janúar 1996) fæddur Iosip Aleksandrovich Brodsky eða Ио́сиф Алекса́ндрович Бро́дский, var rússneskt skáld og leikrita- og pistlahöfundur. Hann fæddist í Leningrad (nú Sankt Pétursborg) í Rússlandi en fluttist til Bandaríkjanna eftir að hafa verið gerður útlægur úr Sovétríkjunum. Hann öðlaðist bandarískan ríkisborgararétt 1977. Hann fékk aldrei að hitta foreldra sína aftur, og tileinkaði þeim endurminninguna Less Than One.
Joseph Brodsky fékk Nóbelsverðlaun í bókmenntum árið 1987. Hann er grafinn í Feneyjum.