Wikipedia:Grein mánaðarins
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
|
Grein mánaðarins er stutt textabrot á forsíðunni sem er uppfærður í upphafi hvers mánaðar með útdrætti úr valdri grein, gjarnan með mynd.
Núverandi grein mánaðarins á forsíðunni er:
Shōgi (将棋), oft kallað japönsk skák, er borðspil sem upprunnið er í Japan. Það er einn af meðlimum skákfjölskyldunnar, en hún nær meðal annars yfir evrópska skák, hið kínverska xiàngqí, og hið kóreska jianggi. Allir þessir leikir eru taldir eiga uppruna sinn að rekja til indverska spilsins chaturanga frá 6. öld.
Tveir leikmenn, svartur og hvítur (eða 先手 sente og 後手 gote) leika á borði með reitum, sem mynda 9 raðir og 9 dálka. Reitirnir eru einlitir, en ekki svartir og hvítir eins og í evrópskri skák. Hver leikmaður ræður yfir 20 spísslaga taflmönnum af mismunandi stærð, eftir því hversu mikilvægir þeir eru.
Formleg tilnefning greina til að birta úr á forsíðu fer fram á Wikipedia:Grein mánaðarins/Tilnefningar. Þegar greinin hefur verið valin er nóg að setja útdrátt inn á Wikipedia:Grein mánaðarins/MM, ÁÁÁÁ (þar sem MM er mánaðarheiti og ÁÁÁÁ er árið). Þar með verður hún sjálfkrafa uppfærð á forsíðunni á miðnætti þegar nýr mánuður gengur í garð. Ekki þarf að færa til eldri útdrætti þar sem þeir geymast sjálfkrafa.
Ef þú vilt tilnefna tiltekna grein sem grein tiltekins mánaðar, getur þú gert það á spjallsíðunni fyrir viðkomandi útdrátt, til dæmis á Wikipediaspjall:Grein mánaðarins/desember, 2006 til að tilnefna grein desembermánaðar.