George Best
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
George Best (fæddur 22. maí 1946 í Belfast, látinn 25. nóvember 2005 í London) var norður-írskur landsliðsmaður í knattspyrnumaður.
Hann þótti einn allra besti knattspyrnumaður heims á stuttum en litríkum ferli sem markaðist af ótrúlegri leikni á vellinum en gífurlegri drykkju og kvennafari utan hans.
Hann lék lengst af með Manchester United og varð Evrópumeistari með þeim 1968. Hann var rekinn þaðan vegna óreglu sinnar og tilkynnti að hann væri hættur knattspyrnuiðkun. Hann snéri þó aftur á völlinn nokkru seinna og lék með fjölda liða áður en hann hætti aftur.
Best lék 37 landsleiki fyrir hönd Norður-Írlands og skoraði í þeim 9 mörk. Auk þess hlaut hann Gullknöttinn, sem besti knattspyrnumaður Evrópu, árið 1968.