Frumsenda
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Frumsendur er setningar eða forsendur sem allar aðrar forsendur innan gefins frumsendukerfis eru afleiður af. Öll stærðfræði í dag byggir á slíkum frumsendum, en sú hefð að byggja stærðfræðilega þekkingu á frumsendum er komin frá heimspekingum Grikklands til forna. Fyrir þann tíma var öll stærðfræði byggð á reynslu, þær formúlur voru notaðar sem reynst höfðu vel.