Alexandre Dumas eldri
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Alexandre Dumas, pére, upphaflega Dumas Davy de la Pailleterie (24. júlí 1802 – 5. desember 1870) var franskur rithöfundur, best þekktur fyrir sögulegar skáldsögur sínar sem hafa gert hann að einhverjum víðlesnasta höfundi heims. Hann sögur hans (s.s. D'Artagnan-bækurnar og Greifinn af Monte Christo) komu gjarnan fyrst út sem bókaraðir eða framhaldssögur í tímaritum og dagblöðum. Hann skrifaði einnig mörg leikrit og blaðagreinar.
Einn sonur hans og alnafni gerðist einnig rithöfundur og eru þeir því nefndir Alexandre Dumas eldri (pére - faðir, á frönsku) og Alexandre Dumas yngri (fils - sonur).