Vespasíanus
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Imperator Caesar Vespasianus Augustus (17. nóvember 9 – 23. júní 79), upphaflega þekktur sem Titus Flavius Vespasianus, var keisari í Rómaveldi frá 69 til 79. Vespasíanus var fyrstur flavíönsku keisaranna en synir hans Títus og Domitíanus voru við völd eftir hans dag. Vespasíanus komst til valda í lok árs hinna fjögurra keisara. Stjórnartíð hans er einkum þekkt fyrir umbætur sem hann stóð fyrir að fordæmi júlíönsku-cládíönsku ættarinnar og fyrir stríð gegn Júdeu.
Fyrirrennari: Vítellíus |
|
Eftirmaður: Títus |