Segl
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Segl getur líka verið ábreiðsla eða hlífðardúkur sem gerður er úr segldúk.
Segl er dúkur sem er hluti af seglbúnaði. Seglið tekur á sig vind og knýr þannig áfram seglskipið eða verkar sem hjálparsegl til að draga úr veltingi á vélbát. Þegar beitt er upp í vindinn getur seglið virkað eins og lóðréttur vængur. Á seglskútum er kjölur undir skrokknum sem myndar mótvægi við hliðarkraftinn þegar vindurinn kemur í seglið á hlið við bátinn.
[breyta] Tegundir segla
[breyta] Stórsegl og toppsegl
- Bermúdasegl
- Djúnkusegl
- Gaffalsegl
- Gaffaltoppur
- Latínusegl
- Loggortusegl
- Rásegl
- Spritsegl
[breyta] Stagsegl o.fl.
- Belgsegl
- Fokka
- Genúusegl
- Klýfir