Safneðlisfræði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Safneðlisfræði er beiting tölfræði, sem veitir stærðfræði tól til að vinna með safn margra hluta, á aflfræði, sem lýsir ferð einda þegar kraftur verkar á þær. Hún veitir grundvöll til að tengja smásæja eiginleika einda til stórsæja eiginleika hluta sem eindirnar mynda og veitir þar með tengingu á milli aflfræði (klassískrar og skammtafræðilegrar) og varmafræði, sem fyrir tíma safneðlisfræðinnar var yfirleitt byggð á reynslu lögmálum.