Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
John Lennon - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

John Lennon

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

John Lennon

John Lennon árið 1969
Fæddur 9. október 1940 ,
Liverpool, Englandi
Dáinn 8. desember 1980 ,
New York, Bandaríkjunum
Ár starfandi 1957-1975,1980
Makar Cynthia Lennon
Yoko Ono


John Ono Lennon, (9. október, 1940 - 8. desember, 1980), (fæddur John Winston Lennon) var enskur tónlistarmaður og lagahöfundur. Hann var helst þekktur sem stofnandi og meðlimur Bítlanna.

Efnisyfirlit

[breyta] Æviágrip

[breyta] Æska

John Lennon var fæddur í Liverpool á Englandi. Móðir hans var Julia Stanley Lennon og faðir hans var Alfred Lennon (kallaður Freddie). Þegar John var ungur drengur yfirgaf faðir hans fjölskylduna og í kjölfarið fól móðir hans systur sinni, Mary Smith (kölluð Mimi), að ala hann upp. Hjá Mimi frænku sinni og hennar manni var John það sem eftir var barnæsku sinnar og á unglingsárum, en hitti þó móður sína reglulega.

Árið 1957 varð til fyrsta mynd hljómsveitarinnar sem síðar varð þekkt sem Bítlarnir. Hún hét í fyrstu The Quarry Men og var John leiðtogi hennar. Skömmu eftir stofnun sveitarinnar hitti John Paul McCartney í fyrsta skipti og varð hann fljótlega meðlimur. Þeir fóru fljótlega að semja lög saman og gerðu þeir með sér samkomulag um að þeir yrðu skráðir sameiginlega sem höfundar fyrir öllum lögum sem annar hvor eða þeir báðir semdu. Þetta samkomulag hélst allt þar til Bítlarnir hættu sem hljómsveit og því eru öll lög sem Lennon samdi fyrir Bítlana (einn eða með McCartney) skráð með höfundarréttinn Lennon-McCartney.

Árið 1958, þegar John var 17 ára, dó Julia Lennon í bílslysi. Þessi atburður hafði mikil áhrif á John og síðar skírði hann son sinn, Julian, í höfuðið á henni. Einnig samdi hann lagið „Julia“ til hennar. Julia hafði sjálf haft tónlistarhæfileika og kenndi John að spila á banjó.

[breyta] Bítlarnir

Aðalgrein: Bítlarnir

George Harrison gekk til liðs við The Quarry Men árið 1958 og Ringo Starr árið 1962, eftir að nafni hljómsveitarinnar hafði verið breytt í The Beatles. Lennon er almennt talinn hafa verið leiðtogi sveitarinnar á upphafsárum hennar.

Árið 1962 giftist John Cynthiu Powell, sem hann hafði verið í sambandi við í nokkur ár og árið 1963 eignuðust þau soninn Julian. Þegar vinsældir Bítlanna fóru að aukast, á árinu 1963, ráðlagði umboðsmaður þeirra, Brian Epstein, John að halda hjónabandinu leyndu frá almenningi. Cynthia Lennon var því aldrei í sviðsljósinu þrátt fyrir hinar gífurlegu vinsældir Bítlanna. Þau skildu árið 1968 eftir að Cynthia komst að því að John hafði verið að halda framhjá sér með japönsku listakonunni Yoko Ono.

Árið 1966 sagði John, í viðtali við London Evening Standard, að Bítlarnir væru orðnir vinsælli en Jesús. Nokkrum mánuðum seinna var hluti af viðtalinu birtur í bandarísku blaði og olli þessi staðhæfing þá miklu fjaðrafoki þar í landi (aðallega í suðurríkjunum). Margar útvarpsstöðvar bönnuðu tónlist Bítlanna og haldnar voru samkomur þar sem plötur þeirra voru brenndar. Til að bregðast við þessu héldu bítlarnir blaðamannafund, þar sem John baðst afsökunar. Sumir voru tilbúnir til þess að samþykkja afsökunarbeiðnina, aðrir ekki, en á endanum fjaraði málið út.

Eftir að Lennon og Ono tóku saman, urðu þau óaðskiljanleg og voru saman nánast öllum stundum. Yoko fylgdi Lennon iðulega í stúdíóið þar sem Bítlarnir sömdu og tóku upp lög. Margir hafa talið þetta eina aðal ástæðu þess að hljómsveitin liðaðist í sundur, þar sem þetta á að hafa valdið togstreitu innan sveitarinnar. Lennon og Ono giftust árið 1969.

Árið 1969 tilkynnti Lennon hinum bítlunum að hann væri hættur í hljómsveitinni. Forstjóri Apple útgáfufyrirtækisins bað hann þó um að halda því leyndu að hann væri hættur. Í apríl 1970 tilkynnti Paul McCartney það opinberlega að Bítlarnir væru hættir saman, án þess að ráðfæra sig við hina Bítlana.

[breyta] Sólóferill

Lennon tók fyrstu skrefin í átt að sólóferli á meðan Bítlarnir voru ennþá starfandi. Á árunum 1968 og 1969 gáfu hann og Ono út þrjár plötur sem innihéldu aðallega mjög tilraunakennda, ómelódíska tónlist. Þetta voru plöturnar Unfinished Music No.1: Two Virgins (1968), Unfinished Music No.2: Life with the Lions (1969) og Wedding Album (1969).

Lennon hóf sólóferil strax eftir að Bítlarnir hættu saman og gaf út plötuna John Lennon/Plastic Ono Band árið 1970. Árið 1971 kom svo út platan Imagine, þar sem er m.a. að finna lagið „Imagine“, eitt frægasta lag Lennons.

Árið 1971 fluttust Lennon og Ono til New York og átti Lennon aldrei eftir að koma aftur til Englands eftir það. Á meðan þau bjuggu ennþá á Englandi höfðu þau reynt að nota frægð sína til þess að breiða út boðskap friðar í heiminum og m.a. talað gegn Víetnamstríðinu. Þegar þau komu til Bandaríkjanna héldu þau þessu áfram og urðu áberandi í baráttunni gegn stríðinu. Í kjölfarið reyndu stjórnvöld í Bandaríkjunum að vísa Lennon úr landi á grundvelli þess að kannabisefni höfðu fundist í fórum hans í London árið 1968. Baráttan við innflytjendayfirvöld stóð allt til ársins 1975, en þá fékk Lennon loksins græna kortið.

1972 kom út platan Some Time in New York City og 1973 kom út platan Mind Games.

Plöturnar Walls and Bridges (1974) og Rock 'n' Roll (1975) komu út á tímabili í lífi Lennons sem vanalega er kallað „The Lost Weekend“. Á þessum tíma voru hann og Yoko aðskilin og bjó hann í Los Angeles en hún í New York. Þetta tímabil einkenndist af miklu sukki af hálfu Lennons.

Árið 1975 fór hann aftur til New York og tók saman við Yoko. Þau eignuðust soninn Sean sama ár. Næstu árin voru róleg í lífi Lennons og sneri hann sér alfarið frá tónlist og einbeitti sér að því að vera heimilisfaðir.

Árið 1980 fór hann að taka upp tónlist á nýjan leik og það gerði Yoko einnig. Afraksturinn varð platan Double Fantasy þar sem hvort um sig samdi og söng helminginn af lögunum.

8. desember sama ár lést John Lennon svo með sviplegum hætti þegar Mark David Chapman, geðsjúkur „aðdáandi“, skaut Lennon fjórum skotum í bakið fyrir utan Dakota bygginguna í New York, þar sem John og Yoko áttu heima.

Áður en John lést voru hann og Yoko byrjuð að vinna að annarri sameiginlegri plötu. Nokkur ár liðu áður en Yoko gat fengið sjálfa sig til þess að klára plötuna, en hún kom að lokum út sem Milk and Honey árið 1984.

[breyta] Útgefið efni

[breyta] Með Bítlunum:

Sjá: Bítlarnir

[breyta] Sóló eða með Yoko Ono:

[breyta] Breiðskífur

  • Unfinished Music No.1: Two Virgins (1968)
  • Unfinished Music No.2: Life with the Lions (1969)
  • Wedding Album (1969)
  • John Lennon/Plastic Ono Band (1970)
  • Imagine (1971)
  • Some Time in New York City (1972)
  • Mind Games (1973)
  • Walls and Bridges (1974)
  • Rock 'n' Roll (1975)
  • Double Fantasy (1980)
  • Milk and Honey (1984)

[breyta] Safnplötur

  • Shaved Fish (1975)
  • The John Lennon Collection (1982)
  • Menlove Ave. (1986)
  • Imagine: John Lennon (1988)
  • Lennon (1990)
  • Lennon Legend: The Very Best of John Lennon (1997)
  • John Lennon Anthology (1998)
  • Wonsaponatime (1998)
  • Acoustic (2004)
  • Peace, Love & Truth (2005)
  • Working Class Hero: The Definitive Lennon (2005)
  • The U.S. vs. John Lennon (2006)

[breyta] Tónleikaplötur

  • Live Peace in Toronto 1969 (1969)
  • Live in New York City (1986)

[breyta] Smáskífur

  • 1969 „Give Peace a Chance“
  • 1969 „Cold Turkey“
  • 1970 „Instant Karma!“
  • 1971 „Mother“
  • 1971 „Power to the People“
  • 1971 „Imagine“
  • 1971 „Happy Xmas (War Is Over)“
  • 1972 „Woman Is the Nigger of the World“
  • 1973 „Mind Games“
  • 1974 „Whatever Gets You Thru the Night“
  • 1975 „#9 Dream“
  • 1975 „Stand by Me“
  • 1980 „(Just Like) Starting Over“
  • 1981 „Woman“
  • 1981 „Watching the Wheels“
  • 1982 „Love“
  • 1984 „Nobody Told Me“
  • 1984 „Borrowed Time“
  • 1984 „I'm Stepping Out“
  • 1984 „Every Man has a Woman who Loves Him“
  • 1985 „Jealous Guy“
Á öðrum tungumálum
Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com