Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Jóhannes úr Kötlum - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Jóhannes úr Kötlum

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Jóhannes sem ungur maður. Að neðan hefur hann skrifað: 'Stutt er dvöl í heimi hér. -  Sjaldan markverð mannsins saga.  - Margur alla sína daga  er að leita - að sjálfum sér
Enlarge
Jóhannes sem ungur maður. Að neðan hefur hann skrifað:
'Stutt er dvöl í heimi hér. -
Sjaldan markverð mannsins saga.
- Margur alla sína daga
er að leita - að sjálfum sér

Jóhannes Bjarni Jónasson úr Kötlum var fæddur að Goddastöðum í Dölum 4. nóvember 1899 og lést í Reykjavík 27. apríl 1972. Jóhannes kvæntist 24. júní 1930, Hróðnýju Einarsdóttur, fædd 12. maí 1908. Börn þeirra: Svanur (1929), Inga Dóra (1940) og Þóra (1948). Jóhannes stundaði nám við lýðskólann í Hjarðarholti 1914 - 1916. Tók kennarapróf 1921 og var kennari frá 1917 til 1932. Hann stundaði síðan eingöngu ritstörf, fyrst í Reykjavík, síðan í Hveragerði, en aftur í Reykjavík frá 1959 og til æviloka. Hann var formaður Félags byltingarsinnaðra rithöfunda 1935 til 1938. Dvaldist sumurin 1939 og 1940 á Kili sem eftirlitsmaður sauðfjársjúkdómanefndar. Jóhannes var alþingismaður Reykvíkinga 1941. Þá var hann umsjónarmaður við Skagfjörðsskála Ferðafélags Íslands í Þórsmörk á sumrum 1955 til 1962. Jóhannes úr Kötlum var eitt helsta skáld sinnar samtíðar og mjög afkastamikill höfundur. Eftir hann liggja 20 ljóðabækur, 5 skáldsögur, hann þýddi fjölda bóka, ritaði greinar í blöð og tímarit og flutti erindi um stjórnmál og menningarmál. Fyrsta ljóðabók hans kom út 1926 og nefndist Bí, bí og blaka og sú síðasta Ný og nið kom út 1970. Ljóð hans eru mjög fjölbreytt að efni og formi, allt frá barnaljóðum, baráttuljóðum og ættjarðarljóðum í hefðbundnum stíl til módernisma. Náttúran á sterk ítök í ljóðum hans og er oft nátengd tilfinningum og lífsviðhorfum Jóhannesar. Hann var alls staðar þátttakandi, hafði ríka réttlætiskennd og var einarður í skoðunum. Jóhannes úr Kötlum hlaut 2. verðlaun fyrir hátíðarljóð sín á Alþingishátíðinni 1930 og 1. verðlaun fyrir Lýðveldishátíðarljóð sitt 1944. Þá hlaut hann Silfurhestinn, bókmenntaverðlaun gagnrýnenda dagblaðanna 1971 fyrir bókina Ný og nið, en sú bók var sama ár tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, en Jóhannes lést áður en verðlaununum var úthlutað. Jóhannes úr Kötlum var heiðursfélagi Rithöfundafélags Íslands.


Efnisyfirlit

[breyta] Helstu verk Jóhannesar

[breyta] Ljóðabækur

  • Bí bí og blaka – útg. 1926 – Reykjavík; Prentsmiðjan Acta
  • Álftirnar kvaka – útg. 1929 - Reykjavík; Prentsmiðjan Acta
  • Ég læt sem ég sofi – útg. 1932 - Reykjavík; Prentsmiðjan Acta
  • Jólin koma – útg. 1932 - Reykjavík; Þórhallur Bjarnarson
  • Ömmusögur - 1933 – Reykjavík; Þórhallur Bjarnarson
  • Samt mun ég vaka – útg. 1935 - Reykjavík – Heimskringla
  • Hrímhvíta móðir - útg. 1937 - Reykjavík – Heimskringla
  • Hart er í heimi - útg. 1939 - Reykjavík – Heimskringla
  • Eilífðar smáblóm - útg. 1940 - Reykjavík – Heimskringla
  • Bakkabræður - 1941 – Reykjavík; Þórhallur Bjarnarson
  • Sól tér sortna - útg. 1945 - Reykjavík – Heimskringla
  • Ljóðið um labbakút - 1946 – Reykjavík; Þórhallur Bjarnarson
  • Ljóðasafn I-II - útg. 1949 - Reykjavík – Heimskringla
  • Hlið hins himneska friðar – útg. 1953 – Reykjavík; Jóhannes úr Kötlum
  • Sjödægra – útg. 1955 – Reykjavík; Mál og menning
  • Vísur Ingu Dóru – útg. 1959 – Reykjavík
  • Óljóð - útg. 1962 - Reykjavík – Heimskringla
  • Tregaslagur - útg. 1966 - Reykjavík – Heimskringla
  • Mannssonurinn - útg. 1966 - Reykjavík – Heimskringla
  • Ný og nið - útg. 1970 - Reykjavík – Heimskringla
  • Ljóðasafn I-VIII – útg. 1972 – 1976 - Reykjavík – Heimskringla
  • Ljóðasafn IX - útg. 1984 – Reykjavík; Mál og menning
  • Saga af Suðurnesjum - útg. 1987 – Reykjavík; Mál og menning
  • Úrval kvæða og ritgerða - útg. 1992 – Reykjavík; Mál og menning
  • Segja vil ég sögu af sveinunum þeim – útg. 1998 – Akureyri; Jólagarðurinn


[breyta] Ljóðaþýðingar

  • Annarlegar tungur (Anonymus) - 1948 Anonymus: Reykjavík – Heimskringla

[breyta] Skáldsögur

  • Og björgin klofnuðu – útg. 1934 – Akureyri; Þorsteinn M. Jónsson
  • Fuglinn segir (smásögur fyrir börn) útg. 1938 – Reykjavík; Heimskringla
  • Verndarenglarnir – útg. 1943 – Reykjavík; Heimskringla
  • Dauðsmannsey – útg. 1949 – Reykjavík; Heimskringla
  • Siglingin mikla – útg. 1950 – Reykjavík; Heimskringla
  • Frelsisálfan – útg. 1951 – Reykjavík; Heimskringla

[breyta] Þýðingar

  • Kak I eftir Vilhjálm Stefánsson og W. Irving – Þýðing unnin með Sigurði Thorlacius – útg. 1934 – Akureyri; Þorsteinn M. Jónsson
  • Kak II eftir Vilhjálm Stefánsson og W. Irving – Þýðing unnin með Sigurði Thorlacius – útg. 1935 – Akureyri; Þorsteinn M. Jónsson
  • Mamma litla I – útg. 1935 – Akureyri; Þorsteinn M. Jónsson
  • Mamma litla II - útg. 1936 – Akureyri; Þorsteinn M. Jónsson
  • Himalajaförin eftir H. Queling – útg. 1938 - Akureyri; Þorsteinn M. Jónsson
  • Salamöndrustríðið eftir K. Capek – útg. 1946 – Reykjavík; Mál og menning
  • Fimm synir eftir Howard Fast – útg. 1954 – Reykjavík; Mál og menning
  • Saga af sönnum manni eftir B.Polevoj – útg. 1955 - Reykjavík; Mál og menning
  • Vegurinn til lífsins I eftir A. S. Makarenko – útg. 1957 - Reykjavík; Mál og menning
  • Vegurinn til lífsins II eftir A. S. Makarenko – útg. 1958 - Reykjavík; Mál og menning
  • Frú Lúna í snörunni eftir Agnar Mykle – útg. 1958 – Reykjavík; Bláfellsútgáfan

[breyta] Tengt efni


  

Þetta æviágrip einstaklings er stubbur.
Þú getur hjálpað til með því að bæta við það

Á öðrum tungumálum
Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com