Hringur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Einnig er til mannsnafnið Hringur.
Hringur (lat. circulus) er tvívíður stærðfræðilegur ferill, sem er þannig að allir punktar hans eru í sömu fjarlægð frá einum tilteknum punkti, sem kallast miðpunktur hringsins. Í sumum tilvikum er orðið hringur látið tákna ferilinn og allt svæðið innan hans.
Jafna hrings með miðju í punktinum (h,k) í rétthyrndu xy-hnitakerfi er (x − h)2 + (y − k)2 = r2, þar sem r táknar radíus hringsins. Jöfnuna má umrita á ýmsa vegu, til dæmis á formið x2 − 2(xh + yk) + y2 + h2 + k2 − r2 = 0.
Flatarmál hrings er stærð þess svæðis sem lokast af innan hringferilsins. Formúla þess er (m² ef radíusinn er mældur í metrum).
Ummál hrings er lengd sjálfs ferilsins. Formúla þess er (m ef radíusinn er mældur í metrum).