Guðlaugur Þór Þórðarson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Guðlaugur Þór Þórðarson (fæddur 19. desember 1967) er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, hann var kosinn á þing í Alþingiskosningunum 2003. Hann situr í sjávarútvegsnefnd og er formaður umhverfisnefndar og Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA. Guðlaugur mun leiða framboðslista Sjálfstæðisflokksins í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu fyrir þingkosningar 2007.
[breyta] Ævi
Foreldrar hans eru Þórður Sigurðsson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn, og Sonja Guðlaugsdóttir, sem rekur bókhaldsskrifstofu. Guðlaugur gekk í Menntaskólann á Akureyri og útskrifaðist úr þaðan árið 1987. Hann var í stjórn SUS á árunum 1987 – 1997, þar af formaður frá 1993.
Hann er giftur Ágústu Johnson og eiga þau saman tvö börn, en hún átti tvö börn úr fyrra hjónabandi.