David Gray
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
David Gray (fæddur 13. júní 1969) er breskur tónlistarmaður þekktastur fyrir lög sín Babylon, This Years Love, Sail Away og The One I Love.
Efnisyfirlit |
[breyta] Ævisaga
David er fæddur 13. júní 1968 í Sale í norðurhluta Manchester-borgar. Um 9 ára aldur fluttist hann með fjölskyldunni til Pembroke-skíris í Wales en sneri til baka til Englands á fullorðinsárunum og settist þá að í norðurhluta landsins til að læra við Liverpool-háskóla. Undirstaða frægðar hans varð fljótt á litið Írar og Wales-búar. Í eitt af fyrstu skiptunum, sem hann kom fram í Írlandi, kynntist hann Pat Ingoldsby, sem er þekktur gamanleikritahöfundur. David fékk mikla spilun í sjónvarpsþættinum No Disco, sem spilaði óskalög áhorfenda, og í einum slíkum þætti sá Pat David í fyrsta sinn. Lagið var Coming Down.
Árið 1992 komst David á samning hjá Hut Records í Stóra-Bretlandi og Caroline Records í Bandaríkjunum. Árið eftir kom fyrsta platan út og hét hún A Century Ends. Platan einkennist af þjóðlagagítar og sorglegum textum Davids.
Næsta plata var Flesh en hún kom út árið 1994. Sú fyrri hafði ekki selst í mörgum eintökum, en það stoppaði ekki lagasmíðir Davids. Eftir útgáfu fyrstu plötunnar fór David á tónleikaferðalag með Shawn Colvin. Flesh vakti mikla athygli en hann missti samt samninginn við Hut Records. Hins vegar bauðst honum samningur við EMI útgáfufyrirtækið.
Næsta plata í röðinni var Sell Sell Sell, sem kom út í takmörkuðu upplagi. David lagði aftur upp í langferð, en í þetta skipti hitaði hann upp fyrir ekki minni hljómsveitir en Radiohead og Dave Matthews Band. Samt sem áður kviknaði ekki glæðan í hlustendum og plötukaupendum. Eitthvert volæði hefur komið í David því hann sagði upp samningi sínum við EMI.
David safnaði saman vinum sínum Clune og Tim Bradshaw, sem hafa unnið saman síðan, árið 1998 og réðust þeir í upptökur á nýrri plötu. Þeir unnu í svefnherbergi Gray í London og söfnuðu einnig fjármunum til vinnunar. Loks gáfu þeir plötuna, White Ladder, út undir eigin merkjum, sem IHT Records. Þetta var platan sem kom honum á toppinn. En þó ekki strax, því það var ekki fyrr en árið 2000 sem hún fór á topp breska vinsældarlistans. Þar er hægt að finna þekktustu lögin hans, á borð við "This Years Love", "Sail Away" og "Babylon".
2001 kom fimmta breiðskífa hans út; "A New Day at Midnight". Þessi plata sat efst á vinsældalistum líkt og sú sem á undan kom, en einnig sú nýjasta, "Life in Slow Motion" sem kom út í september 2005.
[breyta] Þróun tónlistarinnar
Fyrri hluta ferils síns spilaði David mest þjóðlagatónlist og var þá mest með þjóðlagagítar. Á 'Sell, Sell, Sell er David farinn að reyna við rokktónlist og jafnvel raftónlist. Á "White Ladder", er meira leitað út í popp-tónlist og hljóðgervill mikið notaður. Ef vel er hlustað er jafnvel hægt að heyra umferðarnið í bakgrunni nokkurra laga. Við Life in slow motion vann Marius De Vries við framleiðslu, en hann hefur meðal annars unnið með Madonnu og Björku.
[breyta] Hljómsveitin
Þegar David Gray ferðast um og heldur tónleika eru oftast þrír aðrir með honum á sviði. Þetta eru:
- Craig McClune, sem hefur unnið með David allt frá Sell, sell, sell. Clune, eins og hann er alltaf kallaður, spilar á trommur og er mjög fjörugur á sviði. Hann klæðist gjarnan Hawaii-skyrtum, eða er jafnvel ber að ofan á tónleikum.
- Rob Malone spilar á bassagítar. Hann er mun hæglátari og það fer ekki mikið fyrir honum á svði.
- Tim Bradshaw spilar á kassagítar, rafmagnsgítar og hljómborð. Tim hefur spilað með hljómsveitum á borð við Dog Eye View's, Fatima Mansion og Poole. Hann grípur í flest öll hljóðfærin á sviðinu og er dugmikill við hljóðblöndun og önnur verk sem til falla.
[breyta] Annað
- Eiginkona Davids er Olivia, og eiga þau eina dóttur, Ivy, sem er fædd 2002.
- Mágar hans, Phil og Paul Hartnett, stofnuðu raftónlistarsveitina Orbital. David hefur sungið inn á eitt lag með þeim bræðrum; Illuminate af plötunni The Altogether.
[breyta] Útgefin tónlist
[breyta] Breiðskífur
- A Century Ends (1993); Hut Records (UK)/Caroline (USA)
- Flesh (1994); Hut Records
- Sell Sell Sell (1996); EMI
- White Ladder (1998); Iht Records (UK)/ATO Records (USA) #1 UK (Endurútgefin 2000)
- Lost Songs 95-98 (2000); Iht (UK)/ATO Records (USA) #7 UK
- The EPs 1992-1994 (2001); Hut
- A New Day at Midnight (2002); eastwest (UK)/RCA (USA) #1 UK
- Life in Slow Motion (2005); eastwest (UK)/RCA (USA) #1 UK
[breyta] Smáskífur
Af A Century Ends:
Af White Ladder:
- "Please Forgive Me" (1999) #72 UK
- "This Year's Love" (1999)
- "Babylon" (1999)
- "Babylon" (endurútgáfa) (2000) #5 UK
- "Please Forgive Me" (endurútgáfa) (2000) #18 UK
- "This Year's Love" (endurútgáfa) (2001) #20 UK
- "Sail Away" (2001) #26 UK
- "Say Hello Wave Goodbye" (2001) #26 UK
Af A New Day At Midnight:
Af Life in Slow Motion:
- "The One I Love" (2005) #8 UK
- "Hospital Food" (2005) #34 UK
- "Alibi" (2006) #71 UK
- "Slow Motion" (2006)
[breyta] Annað
- David skrifaði tónlistina við myndina "This years love" og lék jafnframt söngvara á bar en Clune lék trommarann.