Brottnám (almennt)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þessi grein er um merkingu orðsins "brottnám". Til að sjá greinina um líffræðihugtakið "brottnám", farið á Brottnám (líffræði).
Brottnám (þf. brottnám, þgf. brottnámi, ef. brottnáms) er nafnorð og hugtak í íslensku sem lýsir sagnorðinu og athöfninni að nema brott.
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga
Óljóst er hvenær byrjað var að nota orðið brottnám. Ljóst er að orðið er samruni atviksorðsins brott og afleidds nafnorðs af sögninni að nema, eða nám. Í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands[1] stendur orðrétt í 66. grein:
"Stöðva má þó brottför manns úr landi með lögmætri handtöku."
Þarna kemur orðið brottför fyrir, en það er líklega skylt brottnám. Því er líklegt að orðið hafi verið til fyrir gerð stjórnarskrárinnar árið 1944
[breyta] Merking og afleiddar merkingar
Merking orðsins brottnám er það að nema eitthvað brott, fjarlægja hlut, endurraða honum. Orðið er oft notað um eitthvað leyndardómsfullt, eins og aðgerðir lögreglu eða mannræningja. Í ensku er orðið remove, sem þýðir bókstaflega endurhreyfa, notað um þessa aðgerð. Það orð er einnig góð lýsing á merkingu orðsins.
[breyta] Afleiddar og nýjar merkingar
Svo vitað sé eru fáar ef einhverjar afleiddar merkingar af orðinu brottnám. Þó hefur því stundum verið ruglað við "brottfararnám", en það gerist bara hjá litlum hluta fólks.
[breyta] Sjá einnig
- Leita að orðinu brottnám í Wikiorðabók
- Leita að orðinu brottför í Wikiorðabók
- Brottnám (líffræði)
[breyta] Heimildir
- Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands [2]