Agamemnon
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Þessi grein fjallar um konunginn í Mýkenu. Um leikrit Æskýlosar, sjá Agamemnon
Agamemnon (forngríska: Ἀγαμέμνων) er ein þekktasta persónan í grískri goðafræði. Hann var sonur Atreifs konungs í Mýkenu og Ærópu drottningar og var eldri bróðir Menelásar, konungs í Spörtu. Agamemnon fór fyrir því herliði Grikkja sem hélt til Tróju í Trójustríðinu.