28. september
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ágú – September – Okt | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
2006 Allir dagar |
28. september er 271. dagur ársins (272. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 94 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1855 - Rósa Guðmundsdóttir frá Vatnsenda lést. Hún var skáldmælt og var þekkt undir heitinu Vatnsenda-Rósa eða Skáld-Rósa.
- 1914 - Þorsteinn Erlingsson, skáld, lést. Þekkt eru kvæði hans eins og Sólskríkjan og Í Hlíðarendakoti.
- 1921 - Þorvaldur Thoroddsen, jarðfræðingur og kennari, lést. Þorvaldur fór margar ferðir um landið og rannsakaði. Hann skrifaði bók um ferðir sínar og margt fleira.
- 1930 - Elliheimilið Grund í Reykjavík var vígt.
- 1943 - Haraldur Böðvarsson, útgerðarmaður á Akranesi, og kona hans gáfu Akraneskaupstað Bíóhöllina og skyldi tekjum af henni varið til menningarmála.
- 1968 - Við Menntaskólann við Hamrahlíð var sett upp höggmyndin Öldugjálfur eftir Ásmund Sveinsson, sem Reykjavíkurborg gaf skólanum.
- 1988 - Önnur ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tók við völdum.
- 1988 - Á Ísafirði var afhjúpaður minnisvarði um Ragnar H. Ragnar, tónskáld og skólastjóra Tónlistarskóla Ísafjarðar. Ragnar hefði orðið níræður þennan dag.
- 1991 - Stofnað var landssamband björgunarsveita og hlaut nafnið Landsbjörg.
[breyta] Fædd
- 1898 - Ragnar H. Ragnar tónskáld.
[breyta] Dáin
- 1855 - Vatnsenda-Rósa Guðmundsdóttir.
- 1914 - Þorsteinn Erlingsson, skáld.
- 1991 - Miles Davis, tónlistarmaður.
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |